Innlent

Ekki talið að eldurinn hafi brotist út með sak­næmum hætti

Atli Ísleifsson skrifar
Grímsnesið lá við festar í Njarðvíkurhöfn þegar eldur kom upp í bátnum.
Grímsnesið lá við festar í Njarðvíkurhöfn þegar eldur kom upp í bátnum. Vísir/Egill

Ekki er talið að eldurinn um borð í skipinu Grímsnesi GK555 aðfaranótt 25. apríl hafi brotist út með saknæmum hætti.

Einn maður lést í eldsvoðanum þegar skipið lá við festar í Njarðvíkurhöfn og liggur annar maður sem var um borð á sjúkrahúsi þungt haldinn.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lögreglunnar. Þar segir að rannsókn lögreglunnar á Suðurnesjum á eldsvoðanum um borð í skipinu sé lokið og miði vel. Skipið hafi verið afhent eigendum og tryggingafélagi til umráða.

„Lögregla vinnur nú úr rannsóknargögnum með aðstoð tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er talið að eldur hafi brotist út með saknæmum hætti en vonir standa til að rannsókn lögreglu geti upplýst um eldsupptök,“ segir í tilkynningunni.

Sjö voru um borð í skipinu sem var við festar í Njarðvíkurhöfn þegar eldur kom upp laust eftir klukkan tvö aðfaranótt þriðjudags.


Tengdar fréttir

Einn liggur enn þungt haldinn á spítala

Einn liggur enn þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir bruna í bátnum Grísmnesi í Njarðvíkurhöfn. Að sögn lögreglu liggja eldsupptök enn ekki fyrir.

Litlu mátti muna að fleiri færust um borð í Grímsnesinu

Einn maður lést og tveir slösuðust þegar eldur kom upp í Grímsnesi GK í Njarðvíkurhöfn í nótt. Ljóst er að litlu mátti muna að fleiri færust í brunanum sem var mjög erfiður viðureignar. Báturinn er mikið skemmdur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×