Erlent

Óttast að mormónar hafi rænt börnunum þeirra

Jóhann Hlíðar Harðarson skrifar
Nokkrar konur úr söfnuði Bókstafstrúarkirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu (Fundamentalist Church of Jesus Christ of Latter-Day Saints) við Old Faithful í Yellowstone-þjóðgarðinum.
Nokkrar konur úr söfnuði Bókstafstrúarkirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu (Fundamentalist Church of Jesus Christ of Latter-Day Saints) við Old Faithful í Yellowstone-þjóðgarðinum. Joe Sohm/Getty Images)

Nokkrir fyrrverandi meðlimir öfgasinnaðs arms mormónasafnaðarins í Bandaríkjunum óttast að stjórnendur hans hafi rænt börnum þeirra, en sumra þeirra hefur verið saknað árum saman.

Foreldrar hinna týndu barna héldu blaðamannafund í vikunni þar sem þeir báðu lögreglu og ákæruvaldið um að hjálpa sér að finna börnin.

Æ fleiri foreldrar yfirgefa söfnuðinn

Þeir sögðu það æ algengara að annað foreldri yfirgefi söfnuðinn og taki þá börnin með sér. Æ fleiri þessara barna hafa horfið sporlaust að undanförnu.

Söfnuðurinn heitir Bókstafstrúarkirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu og er öfgaarmur mormóna sem telur um 10.000 meðlimi. Söfnuðurinn er ólöglegur þar sem hann leyfir fjölkvæni sem hefur verið bannað á meðal mormóna í yfir 100 ár.

Lorraine Jessop sagði í samtali við fjölmiðla að þrjú barna hennar hefðu horfið sporlaust og hún vissi um fimm börn til viðbótar. Mikill þrýstingur væri á þessi börn að snúa aftur til safnaðarins og hún segist hafa fundið hluti á heimilinu sem hún telur að hafa verið notaðir til þess að hjálpa börnunum að flýja.

Börnin óttast vítisvist ef þau snúa ekki aftur

Börnunum hafi verið innrætt áður en foreldrar þeirra yfirgáfu söfnuðinn að þau væru eilíflega glötuð ef þau yfirgæfu söfnuðinn og því væru þau auðveld fórnarlömb æðstu stjórnendanna.

Roger Hoole, lögfræðingur foreldranna sem leita barna sinna, segir að hætta sé á að börnin gangi kaupum og sölum inni í hinum lokaða og bannaða söfnuði, drengirnir séu seldir sem ódýrt vinnuafl og stúlkurnar seldar undir lögaldri til fullorðinna karla sem kvænist þeim.

Leiðtogi safnaðarins er nauðgari og barnaníðingur

Warren Jeffs, síðasti þekkti leiðtogi safnaðarins, stýrði söfnuði sínum með járnhnefa; hann ákvað meðal annars hvað fólkið átti og mátti borða og allir símar og leikföng voru bönnuð. Hann skipulagði hjónabönd í söfnuðinum og gaf saman ólögráða stúlkur og fullorðna karla. Árið 2006 var hann dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir nauðgun og barnaníð. Hann er enn talinn stjórna söfnuði sínum úr fangelsi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×