Handbolti

„Við gefumst aldrei upp í Garðabænum og mætum með flott lið á næsta ári“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Patrekur Jóhannesson verður áfram þjálfari Stjörnunnar.
Patrekur Jóhannesson verður áfram þjálfari Stjörnunnar. vísir/hulda margrét

Þrátt fyrir að handknattleiksdeild Stjörnunnar sé búin að missa sinn stærsta styrktaraðila, TM, er engan bilbug á Garðbæingum að finna. Patrekur Jóhannesson lofar sterku Stjörnuliði á næsta tímabili þótt það verði líklega aðeins yngra en oft áður.

Stjarnan féll úr leik fyrir ÍBV, 2-0, í átta liða úrslitum eftir að hafa endað í 6. sæti Olís-deildar karla. Stjörnumenn komust einnig í undanúrslit Powerade-bikarsins.

Ljóst er að Stjarnan hefur misst sinn aðalstyrktaraðila, TM, sem íþróttahús félagsins í Mýrinni hefur heitið eftir. Þrátt fyrir það segir Patrekur að Stjörnumenn ætli ekki að gefa neinn afslátt af því að tefla fram sterku liði á næsta tímabili.

„Það er ljóst að við þurfum að endurskipuleggja og erum að vinna í því. Það verða einhverjar breytingar og það eru yngri leikmenn að koma upp. Við förum yfir stöðuna og finnum lausnir. Við verðum áfram með sterkt lið,“ sagði Patrekur við Vísi í dag.

Ljóst er að Brynjar Hólm Grétarsson verður ekki með Stjörnunni á næsta tímabili þar sem hann er að flytja aftur til Akureyrar. Þá liggja nokkrir eldri leikmenn liðsins undir feldi og íhuga framtíð sína.

„Það kemur í ljós. Þetta eru flottir strákar og miklir karakterar. Við verðum kannski með aðeins yngra lið. Maður sá í leikjunum gegn ÍBV þegar það komu nokkrir ungir leikmenn beittir inn í liðið. Við gefumst aldrei upp í Garðabænum og mætum með flott lið á næsta ári,“ sagði Patrekur.

Hergeir Grímsson tekinn föstum tökum af Eyjamönnum.vísir/hulda margrét

Hann tók við Stjörnunni í annað sinn 2020. Á fyrsta tímabili hans við stjórnvölinn komust Garðbæingar í undanúrslit úrslitakeppninnar í fyrsta sinn en síðustu tvö tímabil hafa þeir fallið úr leik fyrir Eyjamönnum í átta liða úrslitum.

„Þessi hópur braut þennan múr og komst í undanúrslit í fyrsta sinn. Við höfum líka komist tvisvar sinnum í undanúrslit bikarkeppninnar. Okkur vantar kannski aðeins meiri stöðugleika. Við gátum unnið bestu liðin með mesta fjármagnið en gáfum lent í vandræðum með liðin í neðri hlutanum. Við höldum áfram, það er allt annað að sjá umgjörðina og höllina og við verðum áfram með flott lið,“ sagði Patrekur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×