Umfjöllun,viðtöl og myndir: Haukar – Þór Þor­l. 93-95 | Þórsarar í undan­úr­slit eftir ævintýralegan sigur

Andri Már Eggertsson skrifar
Þórsarar fögnuðu sigri í kvöld.
Þórsarar fögnuðu sigri í kvöld. Vísir/Bára Dröfn

Þór Þorlákshöfn er komið í undanúrslit Subway-deildar karla í körfubolta eftir ævintýralegan sigur í oddaleik í Ólafssal. 

Haukar tóku frumkvæðið og byrjuðu betur. Darwin Davis og Norbertas Giga hafa báðir verið að glíma við meiðsli en voru báðir í byrjunarliðinu og það var við hæfi að þeir gerðu fyrstu tvær körfunnar.

Þór Þorlákshöfn mætir Val í undanúrslitumVísir/Bára Dröfn

Það mátti skynja stress í spilamennsku Þórs Þorlákshafnar til að byrja með. Gestirnir tóku átta þriggja stiga skot og hittu aðeins úr einu í fyrsta leikhluta. Þór tapaði einnig fimm boltum. Haukar voru afar óskynsamir undir lok fyrsta leikhluta þar sem þeir voru að brjóta klaufalega á Þórsurum sem gerðu síðustu sex stigin öll úr vítum.

Hilmar Smári og Norbertas Giga í leik kvöldsinsVísir/Bára Dröfn

Eftir að hafa byrjað 1 af 9 í þriggja stiga skotum brast stíflan í öðrum leikhluta. Tómas Valur Þrastarson setti niður þrist og Vincent Shahid fylgdi því eftir með tveimur þriggja stiga körfum í röð.

Hilmar gegn Jordan SempleVísir/Bára Dröfn

Það var mikill munur á framlagi sem liðin fengu af varamannabekknum. Byrjunarlið Hauka gerði öll stig heimamanna í fyrri hálfleik á meðan varamannabekkur Þórs Þorlákshafnar skilaði 15 stigum.

Þór Þorlákshöfn endaði á að gera síðustu fimm stig fyrri hálfleiks. Heimamenn voru þremur stigum yfir í hálfleik 44-41.

Jordan Semple gerði 12 stig í kvöldVísir/Bára Dröfn

Þórsarar sýndu sitt rétta andlit í þriðja leikhluta og spiluðu töluvert betur. Gestirnir náðu að fá stemninguna með sér og komust yfir í fyrsta skipti um miðjan þriðja leikhluta.

Það var vel mætt í ÓlafssalVísir/Bára Dröfn

Jordan Semple endaði þriðja leikhluta á frábærum varnarleik þar sem hann lokaði á Hilmar Smára og varði síðan skotið hans. Semple öskraði síðan í grillið á Hilmari og fékk afar klaufalega tæknivillu. Haukar voru einu stigi yfir þegar haldið var í fjórða leikhluta 72-71.

Stuðningsmenn Þórs Þorlákshafnar voru í stuðiVísir/Bára Dröfn

Vincent Malik Shahid setti Þór Þorlákshöfn á bakið í fjórða leikhluta og sá til þess að Þórsarar færu í undanúrslitin. Shahid var ótrúlegur undir lokin þar sem hann hitti nánast úr öllu. Shahid gerði 12 af síðustu 15 stigum Þórs Þorlákshafnar. Gestirnir unnu að lokum tveggja stiga sigur 93-95. 

Þórsarar fögnuðu vel eftir leikVísir/Bára Dröfn

Af hverju vann Þór Þorlákshöfn?

Það var ekki mikill afgangur af þessum sigri. Þórsarar voru slakir í fyrri hálfleik en Haukar voru klaufar og gáfu þeim ódýrar körfur úr vítum sem hélt þeim inni í leiknum.

Undir lok fjórða leikhluta gerði Shahid átta stig á tæplega mínútu sem kláraði leikinn. 

Hverjir stóðu upp úr?

Vincent Malik Shahid breyttist í ofurhetju í kvöld. Shahid var magnaður og endaði með 35 stig og 8 stoðsendingar. 

Pablo Hernandez Montenegro hefur oft fengið mikla gagnrýni en hann spilaði vel í kvöld og kom með mikilvægar körfur í þriðja leikhluta. Pablo endaði með 15 stig og tók 6 fráköst.

Hvað gekk illa?

Haukar gátu nagað sig í handarbökin á að hafa ekki verið meira en þremur stigum yfir í hálfleik. Gestirnir enduðu fyrsta leikhluta á að gera sex stig í röð úr vítum. Sama var upp á tengingum í öðrum leikhluta þar sem síðustu tvö stig Þórs komu eftir klaufalega villu Hauka. 

Hvað gerist næst?

Valur og Þór Þorlákshöfn mætast á föstudaginn í Origo-höllinni klukkan 19:15. Tímabilinu er lokið hjá Haukum sem eru komnir í sumarfrí.

Máté: Rulluspilarar breyttust í stjörnur

Máté Dalmay á hliðarlínunni í leik kvöldsins Vísir/Bára Dröfn

Máté Dalmay, þjálfari Hauka, var afar svekktur eftir tap í oddaleik gegn Þór Þorlákshöfn.

„Mér fannst við vera með þetta þangað til fjórði leikhluti var hálfnaður. Okkur tókst ekki að koma forskotinu í tveggja stafa tölu. Þeir settu stór skot niður í fjórða leikhluta og við vissum að það myndi skipta máli.“

Haukar spiluðu afar vel í fyrri hálfleik en Haukar voru að brjóta klaufalega af sér sem varð til þess að Þór hélt sér inn í leiknum á vítaskotum.

„Við vorum með þetta í góðu jafnvægi þar sem vörnin virkaði vel og við fengum góðar opnanir sóknarlega. Við vorum svakalegir klaufar þar sem við vorum að senda þá trekk í trekk á vítalínuna.“

Haukar komu sem nýliðar í Subway-deildina og Máté var nokkuð sáttur með tímabilið í heild sinni.

„Við duttum út í oddaleik með tveimur stigum. Við tókum eitt skref og munum byggja ofan á þetta tímabil. Við munum setja saman sterkt lið sem mun komast einu jafnvel tveimur skrefum lengra.“

„Við erum að fara gera spennandi hluti á næsta ári og stækka starfið mitt. Við munum byggja ofan á þessu tímabili. Við ætlum að fá fleiri efnilega íslenska leikmenn sem fá að sjá gólfið hérna og fá hlutverk til að þroskast. Það sáu það allir í vetur að rulluspilarar urðu að stjörnum og fyrstu deildarleikmenn urðu að úrvalsdeildarleikmönnum og við munum halda áfram að gera það,“ sagði Máté Dalmay að lokum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira