Körfubolti

Tryggvi Snær drjúgur í sigri Zaragoza

Hjörvar Ólafsson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason átti góðan leik í sigri Zaragoza í kvöld.
Tryggvi Snær Hlinason átti góðan leik í sigri Zaragoza í kvöld. Vísir/Getty

Tryggvi Snær Hlinason lagði sín lóð á vogarskálina í 76-73 sigri Zaragoza gegn Gran Canaria í spænsku efstu deildinni í körfubolta í kvöld. 

Íslenski landsliðsmiðherjinn skoraði 14 stig og reif auk þess niður sex fráköst. Tryggvi Snær spilaði 23 mínútur í þessum leik. 

Eftir þennan sigur situr Zaragoza í 12. sæti deildarinnar en Tryggvi Snær og samherjar hans hafa 20 stig og eru sex stig­um frá sæti sem veitir þátttökurétt í úr­slita­keppn­i.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×