Innlent

Endar aldrei vel þegar fólk notar vímu­efni undir stýri

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Billinn hafnaði á hvolfi ofan í grunninum.
Billinn hafnaði á hvolfi ofan í grunninum. Úlfar Snær Arnarson

Maður sem keyrði bifreið ofan í húsgrunn á gamla Blómavalsreitnum í gærkvöldi er grunaður um fíkniefnaakstur. Engin slys urðu á fólki. Maðurinn er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og verður tekin af honum skýrsla seinna í dag.

„Það endar aldrei vel ef fólk er að nota vímuefni undir stýri,“ segir Ásmundur Rúnar Gylfason, stöðvarstjóri á Lögreglustöð 1 sem sinnir málinu. En slysið varð nálægt miðnætti í gærkvöldi.

Íbúum Laugarneshverfis brá í brún í gær þegar þeir sáu rauðan fólksbíl á hvolfi ofan í húsgrunninum. Verið er að byggja stækkun við Grand Hotel. En bíllinn var að keyra af Gullteig þegar hann hafnaði í holunni. Búið er að fjarlægja bifreiðina úr holunni.

Búið er að fjarlægja bílinn úr grunninum.Egill Aðalsteinsson

Aðspurður um hvort að svæðið sé nógu vel merkt og upplýst segist Ásmundur ekki hafa upplýsingar um það en hann telur þó að ástand ökumannsins hafi spilað stærstu rulluna um hvernig fór. Það sé mikil mildi að ekki hafi orðið slys á fólki. Biðlar hann til ökumanna að fara varlega um páskana.

Brotajárn úr bílnum.Egill Aðalsteinsson
Bíllinn fór í gegnum girðingu.Úlfar Snær Arnarson


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×