Lífið

Steindi og Arró féllust í faðma á há­tíðar­frum­sýningu Ó­ráðs

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Aðstandendur myndarinnar Óráðs voru samankomnir í Smárabíói í gær á sérstakri hátíðarfrumsýningu.
Aðstandendur myndarinnar Óráðs voru samankomnir í Smárabíói í gær á sérstakri hátíðarfrumsýningu. Hulda Margrét

Í gær fór fram sérstök hátíðarfrumsýning á íslensku hryllingsmyndinni Óráði í Smárabíói. Myndin fer í almenna sýningu á morgun en leikarar og aðstandendur myndarinnar tóku forskot á sæluna í gær ásamt góðum gestum.

Myndin fjallar um Inga, ungan fjölskylduföður sem er að reyna koma undir sig fótunum að nýju eftir að hafa orðið valdur að hræðilegu slysi. Þegar hann finnur leigjanda látinn í Airbnb íbúð sinni fer að halla undan fæti hjá honum. Dularfullir hlutir fara að gerast þegar Ingi reynir að púsla saman fortíð mannsins á sama tíma og hann forðast að gera upp sína eigin.

Með aðalhlutverk fara þau Hjörtur Jóhann Jónsson og Heiðdís Chadwick en í öðrum hlutverkum eru Steindi Jr., Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Kristbjörg Kjeld og Jóhann Sigurðsson.

Leikstjóri er Arró Stefánsson en þetta er í fyrsta sinn sem hann bregður sér í leikstjórastólinn. Hann á að baki fimmtán ára feril sem kvikmyndatökumaður og hefur skotið þáttaraðir á borð við Hreinan Skjöld og Steypustöðina. Þá hefur hann einnig starfað við auglýsinga- og þáttagerð í Japan.

Ljósmyndarinn Hulda Margrét var viðstödd hátíðarfrumsýninguna í gær og fangaði hún stemningu á myndir sem skoða má hér að neðan.

Hjörtur Jóhann, Arró Stefánsson leikstjóri og Heiðdís Chadwick.Hulda Margrét
Steindi Jr og Arró féllust í faðma. Þeir hafa unnið mikið saman í gegnum tíðina, meðal annars að þáttunum Hreinn Skjöldur og Steypustöðin.Hulda Margrét
Arró Stefánsson leikstjóri og Inga Tinna Sigurðardóttir athafnakona.Hulda Margrét
Markús Hjaltason og Ágúst Bent.Hulda Margrét
Leikarinn Jónas Alfreð og unnusta hans Lára Theódóra Kettler.Hulda Margrét
Unga fólkið skemmti sér vel á hátíðarfrumsýningunni.Hulda Margrét
Hulda Margrét
Aðstandendur myndarinnar í góðum gír.Hulda Margrét
Arnar Benjamín Kristjánsson, framleiðandi myndarinnar.Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Búningur nornarinnar úr Óráði.Hulda Margrét
Bíógestir biðu með eftirvæntingu eftir því að myndin byrjaði.Hulda Margrét
Myndin fer í almenna sýningu á morgun, 31. mars.Hulda Margrét

Fleiri myndir má sjá í albúminu hér fyrir neðan.

Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét
Hulda Margrét

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×