Árni Bragi valdi Aftureldingu fram yfir Val Smári Jökull Jónsson skrifar 26. mars 2023 10:45 Árni Bragi verður áfram í Mosfellsbænum. Vísir/Hulda Margrét Árni Bragi Eyjólfsson hefur framlengt samning sinn við Aftureldingu til næstu þriggja ára. Greint er frá þessu á Facebooksíðu Aftureldingar en Árni Bragi hafnaði tilboði frá Íslandsmeisturum Vals.
Árni Bragi Eyjólfsson er einn af lykilmönnum Aftureldingar sem varð bikarmeistari á dögunum eftir sigur á Haukum í spennandi úrslitaleik. Í morgun greinir handknattleiksdeild Aftureldingar frá því á Facebook að Árni Bragi hafi framlengt samning sinn við félagið til næstu þriggja ára en undanfarnar vikur hefur verið orðrómur í gangi um að Árni Bragi væri á leið úr Mosfellsbænum. Samkvæmt öruggum heimildum Vísis var Árni Bragi með tilboð frá Íslandsmeisturum Vals á borðinu en hann hefur hins vegar ákveðið að framlengja við Mosfellinga sem eru gleðifréttir fyrir nýkrýnda bikarmeistara. Árni Bragi hefur skorað 104 mörk fyrir Aftueldingu í vetur og er í sjötta sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar auk þess sem hann hefur gefið 66 stoðsendingar á félaga sína. Hann lék sem atvinnumaður í Danmörku um skeið en sneri aftur til Íslands árið 2020 og gekk þá til liðs við KA. Þar spilaði hann í eitt tímabil áður en hann sneri aftur í Mosfellsbæinn þar sem hann hafði áður leikið á ferli sínum.
Olís-deild karla Afturelding Valur Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira