Viðskipti erlent

Yfirtakan muni líklega róa markaði í Evrópu

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Snorri Jakobsson, hjá Jakobsson Capital, segir bankana í Evrópu ekki hafa gengið í gegnum sömu endurskipulagningu og íslensku bankarnir gerðu eftir hrun. 
Snorri Jakobsson, hjá Jakobsson Capital, segir bankana í Evrópu ekki hafa gengið í gegnum sömu endurskipulagningu og íslensku bankarnir gerðu eftir hrun.  Stöð 2/Egill

Íslenskur greinandi segir að yfirtaka UBS á Credit Suisse muni líklega róa markaði í Evrópu en bankinn hafi verið svarti sauðurinn að ákveðnu leyti. Það að kaupverðið sé langt undir markaðsvirði komi ekki á óvart þar sem úlfatími sé á fjármálamarkaði. Bandaríkjamenn þurfi einnig að huga að lagabreytingum vegna veikleika sem komu bersýnilega í ljós í síðustu viku. 

Viðræður um yfirtöku svissneska bankans UBS á Credit Suisse hófust á föstudagskvöld en seðlabankinn og fjármálaeftirlitið þar í landi stóðu að viðræðunum, sem höfðu það markmið að endurvekja traust á bankakerfinu. Þá var greint frá því að ríkisstjórn Sviss hafi hist á neyðarfundi og að yfirvöld hygðust breyta lögum til að flýta fyrir samrunanum.

Financial Times greindi fyrst frá fréttunum og í morgun var greint frá því að UBS hafi lagt fram tilboð sem hljóðaði upp á 0,25 svissneska franka á hlut eða allt að 900 milljónir í heildina. Við lokun markaða á föstudag var lokaverð hluta í Credit Suisse 1,86 svissneskir frankar og markaðsvirði bankans 7,43 milljarðar. Mikil óánægja hafi verið úr búðum Credit Suisse með það tilboð.

Síðdegis í dag var þá greint frá því að samkomulag hafi náðst og var kaupverðið þá rúmlega tveir milljarðir Bandaríkjadala. Forseti Sviss staðfesti kaupinn á blaðamannafundi á sjöunda tímanum í kvöld.

Muni væntanlega róa markaði í Evrópu

Rætt var við Snorra Jakobsson, greinanda hjá Jakobsson Capital, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í dag áður en kaup UBS voru staðfest en þá lá fyrir fyrsta boðið frá bankanum. Hann segir fall Credit Suisse ekki hafa komið sérstaklega á óvart.

„Þetta er í raun og veru bara fimmtán ára gamalt vandamál. Bankar í Evrópu gengu aldrei í gegnum svona þessu sömu endurskipulagningu eins og íslensku bankarnir, sérstaklega þarna í Sviss, það breytist aldrei neitt þar. Það var mikið af vandamálum og slæmur rekstur sem að var hreinlega ekki búið að taka á“ segir Snorri.

Það komi ekki á óvart að boðið hafi verið langt undir markaðsvirði.

„Þegar það er svona mikill skortur á fjármagni þá sjá menn sér gott til glóðarinnar, þetta er svona brunasala. Það er úlfatími núna á fjármálamarkaði og þegar það vantar fjármagn, eins og hjá þessum banka, þá seljast eignirnar ekki á háu verði,“ segir Snorri.

Kaupverðið er sagt vera mun lægra en markaðsvirði fyrir helgi. Upprunalega hafði UBS sagst tilbúinn til að borga allt að 900 milljónir svissneskra franka. Grafík/Hjalti

Mikill titringur var á fjármálamörkuðum víða um heim í síðustu viku. Vendingar erlendis bitna líklega lítið á Íslandi, þar sem bankarnir hafa verið styrktir verulega eftir hrun.

„Hérna heima hefur þetta sáralítil áhrif en þetta róar væntanlega markaði í Evrópu og á flestum stöðum eru bankar miklu betur reknir en Credit Suisse, hann var svona svarti sauðurinn,“ segir Snorri. 

Vankantar á kerfinu í Bandaríkjunum kristallast

Þó Credit Suisse hafi verið stærsti bankinn til að falla gerðu vandamálin fyrst vart við sig í Bandaríkjunum, fyrst með falli Silicon Valley Bank á mánudag og síðar Signature bankans. Að sögn Snorra hefur lítið breyst þar.

„Það er náttúrulega búið að taka yfir þarna einhverja banka og leysa úr bönkunum. Á bandarískum mælikvarða eru þetta mjög litlir bankar en það sem hefur kannski verið að kristallast og koma þarna í ljós er að litlir bankar í Bandaríkjunum hafa ekki verið undir jafn ströngu eftirliti og stærri bankarnir,“ segir Snorri.

Þá bendir hann á að bankar sem teljast litlir í Bandaríkjunum séu um 25 sinnum stærri en íslensku bankarnir. Þeir séu þó undir mjög veiku fjármálaeftirliti, sem sýni fram á ákveðið kæruleysi. 

Hvort breytingar á regluverkinu, líkt og Bandaríkjaþing hefur rætt, sé lausnin segir Snorri erfitt að segja.

„En það er alveg ljóst að mörkin voru allt of hátt uppi og þeir þurfa að endurskoða eitthvað löggjöfina og herða hana fyrir þessar minni fjármálastofnanir,“ segir hann.


Tengdar fréttir

Sögð undirbúa neyðarráðstafanir vegna yfirtöku UBS á Credit Suisse

Yfirvöld í Sviss eru sögð undirbúa neyðarráðsstafanir til að flýta fyrir yfirtöku svissneska bankans UBS á Credit Suisse en ríkisstjórnin þar í landi kom saman á neyðarfundi í kvöld. Titringur hefur verið á mörkuðum víða um heim en  íslenska fjármálakerfið er sterkt að sögn fjármálaráðherra. Hann hefur litlar áhyggjur af áhrifum, sem gætu þó orðið einhver. 

Áfram lækkanir í kauphöllum

Hlutabréf í bönkum og fjármálastofnunum hafa lækkuðu áfram við opnun markaða á suðurhveli jarðar í nótt.

Credit Suis­se drag­bítur á evrópskum bönkum

Svissneski bankinn Credit Suisse dróg evrópska banka niður með sér þegar hlutabréfaverð hans hríðféll í skugga óróa vegna falls tveggja bandarískra banka í dag. Gengi bréfa bankans féll um allt að þrjátíu prósent og hefur aldrei verið lægra.

Regl­u­verk­ið virk­að­i ekki og vaxt­a­stefn­an gerð­i bank­a „háða“ lág­um vöxt­um

Gjaldþrot Silicon Valley Bank (SVB) sýnir að sú stefna sem fjármálayfirvöld hafa rekið í einn og hálfan áratug var röng. Regluverkið virkaði ekki og vaxtastefnan gerði banka „háða“ lágum vöxtum. Fleiri bankar glími við samskonar vanda og SVB en það stefnir þó ekki í aðra bankakrísu, segir Jón Daníelsson, prófessor í hagfræði við London School of Economics.

Rann­saka fall Kísil­dals­bankans

Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar nú fall Silicon Valley Bank og gjörðir æðstu stjórnenda hans. Yfirvöld tóku bankann yfir eftir að áhlaup var gert á hann í síðustu viku. Gjaldþrot bankans er það næststærsta í sögu Bandaríkjanna.

Öðrum banka lokað en inni­stæður að fullu tryggðar

Etirlitsaðilar í New York ríki Bandaríkjanna hafa tekið yfir bankann Signature Bank, sem kominn var í sambærileg vandræði og SVB-bankinn sem lokað var fyrir helgi. Innistæður allra innistæðueiganda verða að fullu tryggðar svo tryggja megi trú á bandaríska bankakerfið. Bankarnir voru umsvifamiklir á rafmyntamarkaði.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×