Handbolti

Janus og Sig­valdi einu stigi frá deildar­meistara­titlinum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Janus Daði Smárason var næstmarkahæsti maður vallarins í kvöld.
Janus Daði Smárason var næstmarkahæsti maður vallarins í kvöld. Kolstad

Þrátt fyrir að enn séu fjórar umferðir eftir af norsku deildinni í handbolta eru Janus Daði Smárason, Sigvaldi Björn Guðjónsson og félagar þeirra í verðandi ofurliðinu Kolstad aðeins einu stigi frá norska deildarmeistaratitlinum eftir öruggan tólf marka sigur gegn Drammen í kvöld, 40-28.

Eftir nokkuð jafnar upphafsmínútur tóku heimamenn í Kolstad öll völd á vellinum og breyttu stöðunni úr 8-8 í 18-11. Gestirnir í Drammen bitu þó frá sér áður en hálfleiksflautið gall og skoruðu seinustu þrjú mörk hálfleiksins og staðan var því 18-14 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Kolstad var þó ekki lengi að endurheimta öruggt forskot sitt í upphafi síðari hálfleiks. Liðið hleypti gestunum í raun aldrei nálægt sér það sem eftir lifði leiks og vann að lokum afar öruggan tólf marka sigur, 40-28.

Janus Daði Smárason var næstmarkahæsti maður vallarins með sex mörk fyrir Kolstad, en Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur mörk fyrir liðið. Óskar Ólafsson skoraði eitt mark fyrir Drammen.

Þrátt fyrir að Kolstad hafi ekki enn formlega tryggt sér norska deildarmeistaratitilinn er fyrir löngu orðið ljóst í hvað stefnir. Liðið trónir á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir 18 leiki, sex stigum meira en Íslendingalið Elverum sem situr í öðru sæti og hefur leikið einum leik meira.

Elverum á aðeins þrjá leiki eftir á tímabilinu og getur því í besta falli náð Kolstad að stigum. Kosltad nægir því að næla sér í eitt stig af átta mögulegum til að tryggja sér sinn fyrsta deildarmeistaratitil í sögunni. Liðið varð norskur bikarmeistari um seinustu helgi og var það fyrsti titillinn í sögu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×