Fótbolti

KA hafði betur í Akureyrarslagnum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
368E94257D015CA03DB685872C0E6D695BBE885F12EBDC07999DBC1663DD19D2_713x0

KA vann góðan 1-0 sigur er liðið tók á móti nágrönnum sínum í Þór í A-deild Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld.

Það var Harley Bryn Willard sem skoarði eina mark leiksins þegar hann kom KA-mönnum í forystu á 73. mínútu og þar við sat.

KA hefur nú leikið alla sína fimm leiki í fjórða riðli A-deildar og trónir á toppnum með tólf stig. Liðið er í góðri stöðu því aðeins Fjölnir getur jafnað KA að stigum.

Þórsarar sitja hins vegar í næst neðsta sæti með þrjú stig eftir fjóra leiki og liðið mætir botnliði Þróttar R. í lokaumferðinni eftir rúma viku.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara fengust á Fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×