Handbolti

„Það eru skrambi margar dósir, Gaupi“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Halldórsson er varaformaður handknattleiksdeildar Vals.
Jón Halldórsson er varaformaður handknattleiksdeildar Vals. stöð 2 sport

Það er í mörg horn að líta hjá Valsmönnum fyrir leikinn mikilvæga gegn Benidorm í Evrópudeildinni í handbolta karla í kvöld. Guðjón Guðmundsson kíkti á Hlíðarenda og fylgdist með undirbúningnum.

Með sigri í leiknum í kvöld stígur Valur stórt skref í átt að sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Tapi Valsmenn aftur á móti er staða þeirra orðin erfið.

Það að halda leik í Evrópukeppni krefst mikillar vinnu og fyrirhafnar eins og Gaupi kynnti sér.

„Þegar við fengum tækifæri á að taka þátt kom ekkert annað til greina. Þetta er búið að vera rosaleg vinna en það skemmtilega er að maður finnur, eins og fyrir þennan leik, að það er komið tempó í þetta og þetta rennur smurt. Þetta er mun auðveldara en í byrjun,“ sagði Jón Halldórsson hjá handknattleiksdeild Vals við Gaupa. Að hans sögn koma áttatíu sjálfboðaliðar að leik eins og þessum.

Klippa: Undirbúningur Valsmanna fyrir Evrópukvöld

Mikil útgjöld fylgja þátttöku í Evrópukeppni í handbolta. „Þetta er risa kostnaður. Þetta er öðruvísi en í fótboltanum. Ef við værum komnir jafn langt í fótboltanum værum við orðnir moldríkir. Við áætlum að kostnaðurinn bara í riðlakeppni sé í kringum 25-30 milljónir. Ef við gerum allt rétt fáum við kannski tæpar fimm milljónir frá evrópska handknattleikssambandinu. Við þurfum því að safna um 25 milljónum króna. Það eru skrambi margar dósir, Gaupi.“

Gaupi ræddi einnig við markvarðaþjálfara Vals, Hlyn Morthens, og Tryggva Garðar Jónsson, leikmann liðsins sem er fingurbrotinn.

Innslag Gaupa má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×