Umfjöllun: Grænhöfðaeyjar - Ungverjaland 30-42 | Vonir Íslands úr sögunni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gábor Anscin skoraði fjögur mörk fyrir Ungverjaland.
Gábor Anscin skoraði fjögur mörk fyrir Ungverjaland. Vísir/Vilhelm

Ísland á ekki lengur möguleika á að komast í átta liða úrslit heimsmeistaramótsins í handbolta karla. Þetta var ljóst eftir stórsigur Ungverjalands á Grænhöfðaeyjum, 30-42, í fyrsta leik dagsins í milliriðli II.

Ísland átti veika von um að komast í átta liða úrslitin en til að það myndi gerast þurftu okkar menn að vinna Brasilíu og treysta á að Grænhöfðaeyjar myndu taka stig af Ungverjalandi og Svíþjóð af Portúgal.

En vonin lifði ekki lengi. Ungverjar byrjuðu leikinn í Gautaborg í dag af miklum krafti og náðu strax góðu forskoti. Um miðjan fyrri hálfleik var staðan 5-11 og í hálfleik munaði sjö mörkum á liðunum, 15-22.

Lítil spenna var í seinni hálfleiknum og eina spurningin í raun hversu stór sigur Ungverjalands yrði. Hann varð á endanum tólf mörk, 30-42. 

Ungverjar eru þó ekki komnir áfram því þeir þurfa að treysta á að Svíar vinni Portúgali í kvöld. Svíþjóð er komin áfram og öruggt með sigur í riðlinum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira