Innlent

Sextán ára á rúntinum með vinum sínum

Samúel Karl Ólason skrifar
Í dagbók lögreglunnar er vísað til þó nokkurra mála frá því í gærkvöldi sem tengjast ölvun.
Í dagbók lögreglunnar er vísað til þó nokkurra mála frá því í gærkvöldi sem tengjast ölvun. Vísir/Vilhelm

Lögregluþjónar stöðvuðu í gærkvöldi bíl í Breiðholti sem ekið var yfir gatnamót á rauðu ljósi. Ökumaður bílsins reyndist sextán ára gamall og var hann á ferðinni með þremur vinum sínum.

Í dagbók lögreglunnar er vísað til þó nokkurra mála frá því í gærkvöldi sem tengjast ölvun. Í einu tilfelli voru lögregluþjónar kallaðir til vegna ölvaðs manns sem var til vandræða í strætisvagni. Í minnst tveimur öðrum tilfellum neituðu menn að yfirgefa sitthvoran veitingastaðinn og þá var tilkynnt um mann sofandi ölvunarsvefni í Mjóddinni. Sá var látinn gista fangageymslur þar sem ekki var hægt að koma honum heim.

Í enn einu tilfelli var óskað eftir aðstoð vegna ofurölvi manns sem hafði í hótunum við fólk í Grafarvogi. Sá var einnig búinn að skemma eitthvað af hlutum inn í húsinu og var handtekinn.

Lögregluþjónar stöðvuðu þar að auki mann vegna þess að hann var að tala í símann en þegar lögregluþjónar töluðu við hann grunaði þá að hann væri ölvaður og var hann handtekinn. Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir í nótt grunaðir um ölvun undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.

Þá var lögregla kölluð til eftir að brotist hafði verið inn í geymslur í fjölbýlishúsi á Völlunum í Hafnarfirði. Einnig var tilkynnt um eignaspjöll á stigagangi fjölbýlishúss í hverfinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×