Bíó og sjónvarp

Mando og Grogu snúa aftur í nýrri stiklu

Samúel Karl Ólason skrifar
Stiklusúpa2

Disney birti í nótt stiklu fyrir þriðju þáttaröð Mandalorian. Einnig var opinberað að þættirnir verða sýndir á Disney Plus þann fyrsta mars.

Þættirnir fjalla um stríðsmanninn Din Djarin, eða Mando, og krúttsprengjuna Grogu og ævintýri þeirra. Samkvæmt stiklunni mun Mando setja stefnuna á Mandalore, heimahnött fólks hans sem keisaraveldið gereyðilagði á árum áður.

Þar ætlar hann að öðlast fyrirgefningu fyrir syndir sínar, eftir að hann tók af sér hjálm sinn í síðustu þáttaröð. Einnig virðist sem einhver ný óþekkt ógn hafi stungið upp kollinum og ógni Nýja Lýðveldinu.

Í stiklunni má heyra Mando segja Grogu að sem Mandalorian þurfi hann að læra hvernig hann á að ferðast um stjörnuþokuna fjarlægu sem myndar söguheim Star Wars.

Pedro Pascal leikur Mando en auk hans eru þau Katee Sackhoff, Carl Weathers og fleiri í þáttunum vinsælu. Þeir hafa leitt af sér aðrar þáttaraðir eins og Book of Boba Fett og Ahsoka, sem verða frumsýndir á þessu ári.


Tengdar fréttir

Obi-Wan Kenobi: Auglýst eftir vandvirkni

Obi-Wan Kenobi er þriðja leikna serían úr Stjörnustríðsheiminum frá Disney+. Ég veit ekki hvort hún sé sú versta þeirra, enda samkeppnin við The Book of Boba Fett hörð.

Krúnan og Manda­l­orian sópa að sér Emmy til­nefningum

Tilnefningar til Emmy verðlaunanna hafa verið tilkynntar og eru þar þáttaraðirnar The Crown og The Mandalorian tilnefningaflestar. Hvor þáttanna er tilnefndur til 24 verðlauna en á eftir fylgja WandaVision, Ted Lasso og Handmaid‘s Tale hvað tilnefningafjölda varðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×