Lífið

Leikaraparið á von á sínu öðru barni

Atli Ísleifsson skrifar
Nikki Reed og Ian Somerhalder á verðlaunahátíð árið 2020.
Nikki Reed og Ian Somerhalder á verðlaunahátíð árið 2020. Getty

Bandarísku leikararnir Nikki Reed og Ian Somerhalder, sem kynntust við tökur á The Vampire Diaries, eiga von á sínu öðru barni, fimm árum eftir að þau eignuðust sitt fyrsta.

Þau Reed og Somerhalder greina frá gleðitíðindunum á Instagram þar sem birt er mynd af óléttubumbu Reed þar sem hún heldur á fimm ára barni sínu.

„Allt sem ég óskaði sem ungur drengur var að eignast stóra fjölskyldu. Takk Nik til að veita mér þá gjöf. Önnur umferð, keyrum á þetta!“ segir Somerhalder í færslunni og bætir svo við að Reed sé besta móðir í heimi og hrósar henni fyrir alla þá vinnu sem hún leggur á sig fyrir fjölskylduna.

Þau Reed og Somerhalder giftu sig árið 2015 og eignuðust sitt fyrsta barn skömmu síðar.

Þau slógu í gegn í Hollywood þegar þau léku í sitt hvorri vampíruþáttunum eða vampírumyndunum; Reed í Twilight-myndunum á árunum 2008 til 2012 þar sem hún fór með hlutverk vampírunnar Rosalie Hale og Somerhalder í The Vampire Diaries þar sem hann fór með hlutverk Damon Salvatore.

Þetta er annað hjónaband hinnar 34 ára Reed en hún var áður gift tónlistarmanninum Paul McDonald sem sló í gegn í Americal Idol árið 2011.

Hinn 44 ára Somerhalder var áður í sambandi með Ninu Dobrev sem lék á móti honum í Vampire Diaries, en því sambandi lauk árið 2013.

Þær Reed og Dobrev hafa lengi þekkst og voru margir aðdáendur sem voru óánægðir með að Reed hafi byrjað með fyrrverandi kærasta Dobrev. Dobrev hefur hins vegar sjálf sagt að hún hafi aldrei sett sig upp á móti sambandi þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×