Fótbolti

Manchester United fær C-deildarlið Charlton í heimsókn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Erik ten Hag og lærisveinar hans í Manchester United taka á mót Charlton í átta liða úrslitum enska deildarbikarsins.
Erik ten Hag og lærisveinar hans í Manchester United taka á mót Charlton í átta liða úrslitum enska deildarbikarsins. James Gill - Danehouse/Getty Images

Dregið var í átta liða úrslit enska deildarbikarsins í knattspyrnu eftir að viðureign Manchester City og Liverpool lauk í kvöld.

Charlton var eina liðið í pottinum sem ekki leikur í úrvalsdeildinni, en Charlton leikur í ensku C-deildinni. Liðið á því erfitt verkefni fyrir höndum gegn Manchester United.

Englandsmeistarar Manchester City heimsækja Southampton og Nottingham Forest tekur á móti Úlfunum. Þá taka nýríkir Newcastle menn á móti Leicester.

Leikirnir fara fram í annarri viku janúarmánaðar og þá kemur í ljós hvaða fjögur lið tryggja sér sæti í undanúrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×