Fótbolti

Toppliðið ætlar að vera virkt í janúarglugganum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Mikel Arteta segir að Arsenal ætli sér að sækja leikmenn í janúar.
Mikel Arteta segir að Arsenal ætli sér að sækja leikmenn í janúar. Vincent Mignott/DeFodi Images via Getty Images

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að það verði nóg um að vera hjá félaginu þegar félagsskipaglugginn í Evrópu opnar í janúar, sérstaklega eftir meiðsli framherjans Gabriel Jesus.

Miklar vonir voru bundnar við Jesus þegar hann gekk í raðir Arsenal frá Manchester City, en framherjinn hefur aðeins skorað fimm mörk á tímabilinu, ásamt því að leggja upp önnur sex fyrir liðsfélaga sína.

Þessi 25 ára framherji meiddist með brasilíska landsliðinu á HM í Katar og þurfti í kjölfarið að gangast undir aðgerð á hné.

„Þetta á eftir að taka tíma,“ sagði Arteta um Jesus.

„Hann er búinn að fara í aðgerð og það segir manni að þetta eru alvarleg meiðsli. Þannig að við munum vera virkir á markaðnum og meta stærstu tækifærin sem okkur berast.“

„Við ætlum að vera virkir og að vera virkur þýðir að við erum að leitast eftir því að styrkja liðið. Við búum ekki enn við þann lúxus að hafa ekki efni á því að nýta ekki hvern einasta glugga til hins ýtrasta. Við verðum að gera það því það er mjög mikilvægt, en við þurfum líka að finna réttu mennina.“

„Þetta þarf að vera rétti leikmaðurinn til að koma okkur á næsta stig.“

Arteta og lærisveinar hans í Arsenal tróna á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fimm stiga forskot á Englandsmeistara Manchester City sem sitja í öðru sæti. Arsenal mætir West Ham í Lundúnaslag þegar enska úrvalsdeildin snýr aftur á öðrum degi jóla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×