Handbolti

„Það væri ekkert eðli­lega fal­leg jóla­saga ef Sti­ven fengi tæki­færið“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Arnar Daði vill sjá Stiven Tobar Valencia fá tækifæri með íslenska landsliðinu.
Arnar Daði vill sjá Stiven Tobar Valencia fá tækifæri með íslenska landsliðinu. vísir/hulda margrét

Arnar Daði Arnarsson, einn af sérfræðingum Seinni bylgjunnar og Handkastsins, um Olís deild karla sem og íslenska landsliðið velti fyrir sér hvernig landsliðshópur Guðmundar Guðmundssonar, landsliðsþjálfara, fyrir HM í janúar myndi líta út. Vísir spurði því „Sérfræðinginn“ einfaldlega hvernig hann sæi þetta fyrir sér.

HM í handbolta hefst 11. janúar næstkomandi en mótið fer fram í Svíþjóð og Póllandi. Ísland er í C-riðli ásamt Portúgal, Ungverjalandi og Suður-Kóreu. Á fimmtudaginn kemur, 22. desember, mun Guðmundur opinbera hópinn sem fer á mótið.

Arnar Daði velti upp nokkrum spurningum á Twitter-síðu sinni fyrir komandi val en í dag eru 23 dagar í fyrsta leik Íslands á mótinu. Arnar Daði spurði eftirfarandi spurninga:

  • A) Tekur Guðmundur tvo eða þrjá markverði?
  • B) Hákon Daði Styrmisson, Orri Freyr Þorkelsson eða Stiven Tobar Valencia?
  • C) Donni [Kristján Örn Kristjánsson] eða Teitur Örn Einarsson?
  • D) Teitur Örn eða Óðinn Þór Ríkharðsson?

Arnar Daði telur að það fari þrír markverðir með

„Guðmundur tekur með sér þrjá markmenn vegna meiðslanna sem Viktor Gísli Hallgrímsson hefur verið að kljást við í olnboga síðustu vikur og mánuði.“

„Það verður síðan hlutverk Ágústs Elís Björgvinssonar að vera fyrir utan hóp eins og síðustu mót. Eitthvað sem mætti þó alveg breytast og Guðmundur mætti vera duglegri að nota Ágúst Elí.“

Telur að Hákon Daði hafi betur

Hákon Daði í leik með Gummersbach.Getty Images

„Ef einhver annar en Guðmundur væri að þjálfa landsliðið þá væri þetta mjög athyglisvert en vegna þess hve íhaldsamur GG er þá finnst mér allt benda til þess að Hákon Daði fari með. Hann er að spila í bestu deild í heimi og hefur verið að koma sterkur inn eftir erfið meiðsli.“

„Það væri hins vegar ekkert eðlilega falleg jólasaga ef Stiven fengi tækifærið. Hann hefur önnur vopn sem enginn annar vinstri hornamaður á Íslandi hefur.“

Erfiðast að spá fyrir um Donna eða Teit

„Þetta er erfiðasta spurningin. Donni hefur verið að glíma við meiðsli að undanförnu og það gæti haft áhrif. En miðað við síðasta landsleikja glugga þá tæki ég alltaf Donna. Hann hefur ótrúlegt vopnabúr sem gæti nýst okkur á stórum mómentum.“

Óðinn Þór í leik með íslenska landsliðinu.Vísir/Eyþór

„Óðinn Þór hefur aldrei verið í uppáhaldi hjá Gumma Gumm og það hefur sést vel í vali Gumma síðustu ár. Það kæmi mér lítið á óvart að hann tæki Teit fram yfir Óðin en ég ætla spá því hins vegar að hann hafi lært af síðasta móti. Þar spilaði Sigvaldi alltof margar mínútur og það kostaði hann meiðsli í kjölfarið. Hann verður að taka hreinræktaðan hægri hornamann með Sigvalda og velur því Óðinn Þór.“

Hér að neðan má svo sjá landsliðsópinn ef Arnar Daði fengi að ráða.

Handkastið verður með umfjöllun um HM bæði í aðdraganda mótsins og á meðan mótinu stendur. Fyrsti þáttur HM Handkastsins kemur inn á Vísi annað kvöld, miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×