Lífið

Snorri Helga, Systur og Fóst­bræður á Degi ís­lenskrar tón­listar

Atli Ísleifsson skrifar
Systur, Auður Jónsdóttir, Snorri Helgason og Karlakórinn Fóstbræður koma fram.
Systur, Auður Jónsdóttir, Snorri Helgason og Karlakórinn Fóstbræður koma fram. vísir

Dagur íslenskrar tónlistar er haldinn hátíðlegur í dag. Íslensk tónlist sem og tónlistarfólk í forgrunni og íslenskir tónar fá þá vonandi að heyrast sem víðast.

Í tilefni dagsins verður athöfn í Hörpu þar sem veittar verða viðurkenningar, einstaklingum og hópum, fyrir góð störf í þágu íslensks tónlistarlífs og að auki kemur landsþekkt tónlistarfólk fram og flytur lög dagsins.

Dagskráin hefst klukkan 13:00 og stendur til 13:45 og verður hægt að fylgjast með útsendingunni í beinni útsendingu hér á Vísi og Stöð 2 Vísi.

Fóstbræður, Snorri Helga og Systur stíga á stokk

Karlakórinn Fóstbræður sem hefur undanfarna daga heillað tónlistarunnendur í Salzburg mun heimsækja samkomuna og flytja Hver á sér fegra föðurland sem hæfir auðvitað þessum degi sem jafnframt er fullveldisdagurinn. Ljóðið er eftir ljóðskáldið Huldu og lagið eftir Emil Thoroddsen. 

Því næst mun söngvaskáldið Snorri Helgason stíga á stokk og leika sína útgáfu af lagi úr hinu rómaða ævintýri um Pílu pínu eftir Kristján frá Djúpalæk. Saknaðarljóð Gínu mömmu er eftir Heiðdísi Norðfjörð og flestir þekkja í flutningi Ragnhildar Gísladóttur en nú mun Snorri spreyta sig á kvæðinu. 

Loks verður önnur ábreiða flutt þegar eitt vinsælasta lag síðasta árs Ef ástin er hrein eftir Jón Jónsson og Einar Lövdahl, sem þau Jón og GDRN fluttu eftirminnilega, fær nýjan búning frá Júróvisjón-stjörnum ársins, þeim Siggu, Elínu og Betu - Systrum.

Auður Jónsdóttir flytur tölu

Rithöfundurinn Auður Jónsdóttir mun halda stutta tölu við athöfnina og flytja íslensku tónlistarfólki eins konar aðdáendabréf. 

Viðurkenningarnar sem veittar verða munu rata til þeirra sem þykja hafa skarað fram úr í um­fjöll­un, dag­skrár­gerð og stuðningi við ís­lenska tónlist síðustu misseri. Þar á meðal eru það heiður­sverðlaun­in Lít­ill fugl sem Arnar Eggert Thoroddsen hlaut í fyrra en meðal handhafa síðustu ára eru Gerður G. Bjark­lind, Jón Ólafsson, Árni Matthíasson og Þorgeir Ástvaldsson. 

Einnig verða veitt hvatn­ing­ar-, útflutnings og ný­sköp­un­ar­verðlaun auk Glugg­ans sem fell­ur þeim í skaut sem sýnt hef­ur íslenskri tónlist at­fylgi með áberandi hætti.

Lögin þrjú sem talin voru hér að ofan og flutt verða við athöfnina tóku tón­mennta­kenn­ar­ar lands­ins þátt í að velja og hafa æft með nemendum sínum um allt land síðustu vik­ur. 

Fjöldi barna mun því syngja með. Deg­in­um verður annars fagnað á marg­vís­leg­an máta, útvarps­stöðvar setja ís­lenska tónlist í for­grunn og spila hana jafnvel einvörðungu. Landsmenn sem notast mögulega við aðrar veitur en útvarp eru hvattir til þess að setja íslenska tóna á fóninn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×