Lífið

Bæði á lausu og fingurkoss á tónleikum gerði allt vitlaust

Elísabet Hanna skrifar
Kendall Jenner og Harry Styles voru orðuð við hvort annað á árunum 2013 til 2019.
Kendall Jenner og Harry Styles voru orðuð við hvort annað á árunum 2013 til 2019. Getty/Taylor Hill/Mondadori Portfolio

Kendall Jenner sást á tónleikum fyrrverandi kærasta síns Harry Styles á dögunum. Allt ætlaði um koll að keyra á TikTok þegar myndband fór í dreifingu af honum að senda henni fingurkoss í miðju „Love of My Life“ lagi. Í vikunni komu fréttir af sambandsslitum í samböndum þeirra beggja.

Bæði hætt með mökunum sínum

Olivia Wilde og Harry styles eru hætt saman,“ segir Hollywood-spekingurinn Birta Líf spennt í Brennslutei vikunnar þar sem hún fer yfir allt það helsta í Hollywood. „Þetta var samt svona pínu vitað, um leið og Don't Worry Darling hypeið væri farið niður, þá var fólk hætt að tala um þau.“ Hún segir ástæðuna sem þau gefa upp þó vera að mikið sé að gera hjá þeim báðum.

Annað par sem gaf nýlega upp sömu ástæðuna eru Kendall Jenner og Devin Booker sem tilkynntu sambandsslitin sín í annað skiptið í gær. Birta Líf virðist ekki vera hissa á fréttum gærdagsins ef litið er yfir atburðarás síðustu daga. 

Kendall og Harry voru orðuð við hvort annað á árunum 2013 til 2019 og hefur Kris Jenner, móðir Kendall staðfest að um samband hafi verið að ræða. 

Ekki tilviljun

„Hver mætti á tónleika hjá Harry Styles? Kendall Jenner. Hverjir voru einu sinni saman? Kendall Jenner og Harry Styles. Hver söng Love of my life og horfði á Kendall á tónleikunum? Harry Styles. Tveimur dögum seinna eru hann og Olivia hætt saman og núna eru Devin Booker og Kendall Jenner hætt saman. 

Ertu að segja mér að það sé ekki eitthvað í skýjunum?“ spyr Birta Líf og segir það augljóst að hann hafi farið að rífast við Oliviu eftir atvikið á tónleikunum. 

Myndband af honum að senda henni fingurkoss

Myndband fór í dreifingu af Harry Styles að senda Kendall Jenner fingurkoss í miðju „Love of My Life“ lagi þann 14. nóvember fyrir rúmri viku síðan þegar hún mætti á tónleikana hans líkt og sjá má hér að neðan:

Sameinuðust í leik eftir sambandið

Fyrrum parið sameinaðist í liðnum Spill your guts hjá James Corden árið 2019 eftir að þau hættu saman. Kendall spurði Harry Styles meðal annars að því hvaða lag á síðustu plötunni hans væri um hana. Hann neitaði að svara og borðaði því þorskasæði líkt og sjá má hér að neðan. 

Hér að neðan má heyra Brennsluteið í heild sinni:


Tengdar fréttir

Harry Styles og Olivia Wilde segja það gott í bili

Leikarinn og söngvarinn Harry Styles og leikkonan og leikstjórinn Olivia Wilde hafa ákveðið að gera hlé á sambandi sínu. Parið hefur verið saman síðan í janúar á síðasta ári. 

Kendall Jenner og NBA stjarnan Devin Booker eru hætt saman

Fyrirsætan Kendall Jenner og körfuboltamaðurinn Devin Booker eru hætt saman eftir tveggja ára samband samkvæmt Entertainment Tonight, allavegana í bili þar sem talið er að þau gætu náð aftur saman. 

Met Gala síðustu ár sem upphitun fyrir kvöldið

Í dag er fyrsti mánudagurinn í maí og innan tískuheimsins þýðir það bara eitt: Met Gala. Hönnuðir túlka þar þemu sem eru sett fyrir ár hvert og stjörnurnar mæta á Metropolitan listasafnið í New York í glæsilegri hönnun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×