Handbolti

Tekur undir barnastjörnustimpilinn með semingi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnar Freyr Guðmundsson í nýja íþróttahúsi ÍR í Skógarseli.
Arnar Freyr Guðmundsson í nýja íþróttahúsi ÍR í Skógarseli. vísir/vilhelm

Breiðhyltingurinn Arnar Freyr Guðmundsson þótti einn efnilegasti handboltamaður landsins á sínum tíma. Meiðsli settu stórt strik í reikning hans og skórnir voru á hillunni um tíma. En hann sneri aftur af alvöru fyrir þetta tímabil og hefur spilað vel liði ÍR sem hefur komið mörgum á óvart.

Arnar skoraði tíu mörk þegar ÍR gerði jafntefli við Aftureldingu, 31-31, á heimavelli sínum í Skógarseli á mánudaginn. ÍR-ingar fengu þar með sitt fimmta stig í Olís-deildinni sem er líklega fimm stigum meira en flestir bjuggust við.

„Tilfinningin var súrsæt. Auðvitað var frábært að fá stigið en úr því sem komið var og hvernig staðan var undir lokin hefði maður viljað fá þau bæði,“ sagði Arnar í samtali við Vísi. Hann kom ÍR í 31-30 en Igor Kopyshynsyi jafnaði fyrir Aftureldingu í 31-31 í lokasókn leiksins.

„Við létum vaða og pældum ekkert of mikið í hlutunum. Við keyrðum á þá, nýttum okkar tækifæri og mikluðum hlutina ekkert fyrir okkur. Við þurfum að gera það.“

Sjálfstraust þrátt fyrir hrakspár

ÍR féll úr Olís-deildinni tímabilið 2020-21 án þess að fá stig og flestir bjuggust við að það sama yrði uppi á teningnum í vetur. En ÍR-ingar hafa unnið tvo leiki og komust upp úr fallsæti með jafnteflinu gegn Mosfellingum.

„Mér finnst vera frábær andi og trú í hópnum. Við veltum einhverri umræðu um stig ekkert fyrir okkur. Við erum klárir með okkar markmið innan hópsins og höfum trú á okkur,“ sagði Arnar. Fyrir tímabilið tók Bjarni Fritzson, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður og metsöluhöfundur, aftur við ÍR-liðinu. Arnar fagnaði því að fá Bjarna við stjórnvölinn.

Bjarna Fritzsyni er ýmislegt til lista lagt.vísir/vilhelm

„Það var gott. Ég þekki hann mjög vel enda þjálfaði hann mig þegar við vorum síðast í Olís-deildinni. Bjarni er frábær þjálfari, með sína hluti á hreinu og leikskipulagið er skýrt og það skiptir öllu máli.“

Erfitt að æfa og halda takti

Arnar byrjaði að spila með ÍR á síðasta tímabili en tók svo óvænt við kvennaliði félagsins í desember. Hann kláraði hins vegar tímabilið og hjálpaði ÍR-ingum að komast í gegnum umspilið um sæti í Olís-deildinni. En hann var hættur í handbolta vegna tíðra meiðsla.

Arnar er markahæsti leikmaður ÍR á tímabilinu með 56 mörk í Olís-deildinni.vísir/vilhelm

„Ég hætti tímabilið 2020-21. Ég glímdi við mikil álagsmeiðsli. Þau héldu mér kannski ekki frá því að spila en það að æfa og halda sér í takti var drulluerfitt og ég var orðinn þreyttur á því. Þannig ég hætti en neistinn kom aftur,“ sagði Arnar.

„Núna er ég í þessu á öðrum forsendum; hafa gaman, spila fyrir uppeldisfélagið í nýju og frábæru íþróttahúsi og brosa.“

Tvær aðgerðir við beinhimnubólgu

Arnar reynir að æfa eins og aðrir, eða allavega eins og líkaminn þolir. „Ég þarf að passa mig. Ég er búinn að fara í tvær aðgerðir vegna beinhimnubólgu og er með byrjunarstig af brjósklosi. Maður er mis slæmur og reynir að stilla æfingavikunni þannig upp að maður sé ferskur fyrir leiki. Þetta er púsluspil.“

Arnar og félagar hans í ÍR eru í 10. sæti Olís-deildarinnar.vísir/vilhelm

Arnar þótti mikið efni á sínum tíma og talað var um hann sem barnastjörnu í hlaðvarpinu Handkastinu á dögunum. Hann tekur undir barnastjörnustimpilinn, en með smá semingi.

Gæti eitthvað verið til í því

„Ég veit það ekki. Það gæti vel verið. Ég var alltaf fínn þegar ég var yngri og var í yngri landsliðunum. Það gæti því eitthvað verið til í því. Barnastjarna eða ekki? Ég veit það ekki?“

Arnar er fæddur 1998 og spilaði með leikmönnum á borð við Gísla Þorgeiri Kristjánssyni, Teiti Erni Einarssyni, Orra Frey Þorkelssyni, Viktori Gísla Hallgrímssyni og fleiri góðum.

Gott að geta kennt Austurberginu um

Annað sem var varpað fram í Handkastinu var að gólfið í Austurberginu, gamla íþróttahúsi ÍR-inga, hafi farið illa með skrokkinn á Arnari og átt sinn þátt í þeim miklu meiðslum sem hann hefur glímt við.

Arnar í leik í Austurberginu þar sem ÍR spilaði um margra ára skeið.vísir/bára

„Ég veit ekki hvort það er mýta eða ekki en þegar það var skipt um parket var ákveðið skera af dempuninni svo stúkan aftur undir. Við höfum ekkert brjálæðislega mikið fyrir okkur í þessu en það er alltaf gott að grípa í þessa afsökun þegar maður er að drepast,“ sagði Arnar.

Bylting með nýju húsi

Hann getur þó ekki kennt gólfinu sem hann spilar á núna um neitt enda eru ÍR-ingar nýfluttir í nýtt íþróttahús við Skógarsel. Loksins eru því allar deildir félagsins komnar á sama stað.

„Við erum ótrúlega ánægðir í Skógarselinu og það er að myndast ágætis stemmning á heimaleikjum. Það er andi í húsinu þótt það sé stórt og þetta verður smá gryfja. Okkur líður vel þarna,“ sagði Arnar.

ÍR hefur náð í öll sín fimm stig í Olís-deildinni á heimavelli.vísir/vilhelm

„Það skiptir öllu að vera komnir undir sama þak. Við vorum í Austurbergi, karfan í Seljaskóla og fótboltinn í Skógarselinu. Tengingin milli deilda var lítil en hún er að styrkjast. Svo skiptir þetta ótrúlega miklu máli fyrir yngri flokka starfið okkar, að fá krakkana á sama stað í stað þess að vera úti um allt í Breiðholtinu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×