Handbolti

Noregur og Svíþjóð bæði með fullt hús stiga á EM

Smári Jökull Jónsson skrifar
Stine Bredal Oftedal í kröppum dansi gegn varnarmönnum Sviss í leiknum í dag.
Stine Bredal Oftedal í kröppum dansi gegn varnarmönnum Sviss í leiknum í dag. Vísir/Getty

Noregur og Svíþjóð eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki þjóðanna á Evrópumóti kvenna í handknattleik en mótið fer fram í Slóveníu, Norður-Makedóníu og Svartfjallalandi.

Noregur undir stjórn Þóris Hergeirssonar var algjöran yfirburðasigur á Sviss í dag þar sem lokatölur urðu 38--21. Noregur var strax komið með tíu marka forskot í hálfleik og liðið er nú komið með fjögur stig í A-riðli en Sviss hefur tapað báðum sínum leikjum. 

Stine Bredal Oftedal skoraði sex mörk fyrir Noreg í leiknum og Silje Solberg markvörður liðsins varði nærri helming þeirra skota sem hún fékk á sig. 

Í hinum leiknum í A-riðli vann Króatía sigur á Ungverjum en króatíska liðið tapaði með níu marka mun fyrir Noregi í fyrstu umferðinni á meðan Ungverjar unnu Sviss.

Það var fremur lítið skorað í viðureign liðanna en Króatía leiddi 10-7 í hálfleik. Þær héldu frumkvæðinu í síðari hálfleik og unnu að lokum 21-18 sigur og eru þar með komnar á blað í keppninni.

Valentina Blazevic var langmarkahæst hjá Króatíu í dag með níu mörk en Viktoria Lukacs skoraði fjögur fyrir Ungverjaland. Þá átti Tea Pijevic stórleik í marki Króatíu.

Svíar eru sömuleiðis með fullt hús stiga eftir sigur á heimakonum frá Slóveníu í dag. Slóvenía náði því ekki að fylgja eftir góðum sigri á Dönum í fyrstu umferðinni.

Svíar leiddu 14-13 í hálfleik í dag en í síðari hálfleik gjörsamlega pökkuðu þær Slóvenunum saman og unnu að lokum 33-22 sigur. Nathalie Hagman skoraði níu mörk fyrir Svíþjóð í leiknum og Jamina Roberts átta. Ana Gros var markahæst hjá Slóveníu með fimm mörk.

Danir voru ekki lengi að hrista af sér tapið gegn Slóveníu og unnu stórsigur á Serbíu. Danir leiddu 18-11 í hálfleik og héldu svo áfram í síðari hálfleik og unnu að lokum 34-21 sigur.

Sarah Iversen, Kathrine Heindahl og Trine Jensen Östergaard skoruðu allar fjögur mörk fyrir Dani í dag og bæði Sandra Toft og Rebecca Reinhardt voru frábærar í markinu.

Á morgun fara fram þrír leikir. Þýskaland tekur á móti Svartfellingum, Spánn á móti Póllandi og þá mætast lið Rúmeníu og Frakklands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×