Lífið

Bíður eftir ellefta barninu og er sagður eiga von á því tólfta

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Tíu barna faðirinn Nick Cannon bíður eftir sínu ellefta barni og er einnig sagður eiga von á því tólfta.
Tíu barna faðirinn Nick Cannon bíður eftir sínu ellefta barni og er einnig sagður eiga von á því tólfta. Getty/Prince Williams

Barnamaskínan og þáttastjórnandinn Nick Cannon er sagður eiga von á enn öðru barninu. Barnsmóðir hans Alyssa Scott greindi frá því á Instagram í gær að hún væri ófrísk. Þá herma heimildir ET fjölmiðilsins að Cannon sé faðirinn, þrátt fyrir að hann hafi ekki enn staðfest það.

Cannon er þekktastur sem þáttastjórnandi og fyrir það að hafa verið giftur söngkonunni Mariuh Carey í átta ár. Nú er þó nánast hægt að segja að hann sé orðinn frægari fyrir barnalán sitt.

Saman eiga þau Cannon og Carey tvö börn. Eftir að þau skildu árið 2016, hefur Cannon eignast átta börn með fimm konum. Alls á hann því tíu börn og á hann von á því ellefta síðar á árinu. Þá virðist tólfta barnið einnig vera á leiðinni. Hér að neðan verður farið yfir barnalán Cannons:

Moroccan og Monroe - apríl 2011

Cannon eignaðist tvíburana Moroccan og Monroe með þáverandi eiginkonu sinni Mariuh Carey í apríl 2011. Þau eru því ellefu ára gömul í dag.

Golden Sagon - febrúar 2017

Cannon og Carey skildu árið 2016. Ári síðar eignaðist Cannon soninn Golden Sagon með fegurðardrottningunni Brittany Bell.

Powerful Queen - desember 2020

Þremur árum síðar eignaðist Golden Sagon litla systur. Bell fæddi stúlku í desember árið 2020 og hlaut hún nafnið Powerful Queen.

Zion Mixolydian og Zillion Heir - júní 2021

Hálfu ári eftir fæðingu Powerful Queen eignaðist Cannon tvíburadrengina Zion og Zillion. Þá eignaðist hann með plötusnúðinum Abby De La Rosa. Í dag eru drengirnir rúmlega eins árs.

Zen - 23. júní 2021

Aðeins níu dögum eftir fæðingu tvíburanna eignaðist Cannon son með fyrirsætunni Alyssa Scott. Drengnum var gefið nafnið Zen. Þegar Zen var tveggja mánaða gamall greindist hann með heilaæxli. Hann lést í desember á síðasta ári, aðeins fimm mánaða gamall.

Zen var aðeins fimm mánaða gamall þegar hann lést eftir baráttu við heilaæxli.Instagram

Legendary Love - 28. júní 2022

Cannon byrjaði árið 2022 á því að tilkynna að hann ætti von á barni með fyrirsætunni Bre Tiesi. Þeim fæddist svo dóttirin Legendary Love í júlí á þessu ári.

Onyx Ice Cole - september 2022

Tveimur mánuðum síðar kom níunda barn Cannons í heiminn. Hann eignaðist stúlku með fyrirsætunni LaNisha Cole sem varð þar með hans sjötta barnsmóðir. Súlkan hlaut nafnið Onyx Ice Cole.

Rise Messiah - september 2022

September var viðburðaríkur mánuður í lífi Cannons. Því níu dögum eftir fæðingu Onyx eignaðist hann son með fyrirsætunni Brittany Bell. Á hann tvö börn með henni fyrir. Drengnum var gefið nafnið Rise Messiah.

Nick Cannon eignaðist soninn Rise í september með fyrirsætunni Brittany Bell. Hann er þeirra þriðja barn saman.Instagram

Ellefta barnið á leiðinni

Cannon er ekki hættur, því hann á von á sínu ellefta barni með áhrifavaldinum Abby De La Rosa síðar á árinu. Sjónvarpsmaðurinn mun því eiga fjögur börn á sama árinu. Þau eiga saman tvíburadrengina Zion og Zillion, eins árs.

Nick og Abby De La Rosa eiga von á sínu þriðja barni saman. Verður það fjórða barnið sem Nick eignast á þessu ári.Instagram

Tólfta barnið á leiðinni?

Fyrirsætan Alyssa Scott á von á barni og heimildir Entertainment Tonight herma að Nick Cannon sé pabbinn. Saman áttu þau Scott og Cannon drenginn Zen sem lést á síðasta ári. Af myndum af dæma virðist Scott vera komin nokkuð langt á leið. Það er því aldrei að vita nema Cannon nái þeim merkilega áfanga að eignast fimm börn á sama árinu.

Fyrirsætan Alyssa Scott er ófrísk og er talið að Nick Cannon sé faðirinn.Instagram

Tengdar fréttir

Nick Cannon á von á sínu níunda og tíunda barni

Bandaríski þáttastjórnandinn Nick Cannon á nú von á sínu níunda og tíunda barni. Nýjasta tilkynningin er hans þriðja barn með fyrirsætunni Brittany Bell en fyrir eiga þau börnin Golden Sagon og Powerful Queen.

Sjöunda barn Nick Cannon lést á sunnudag

Bandaríski þáttastjórnandinn Nick Cannon greindi frá því í þætti sínum að Zen, sonur hans og fyrirsætunnar Alyssu Scott, lést á sunnudag. Drengurinn greindist tveggja mánaða með heilaæxli og ástandið versnaði svo mikið yfir Þakkargjörðarhátíðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×