Innlent

Hefur verið veikur í mörg ár vegna myglu í Foss­vogs­skóla: „Hann hefur náð einum vetri í skóla“

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar

Móðir drengs í Foss­vogs­skóla segir son sinn hafa veikst aftur eftir að skóla­starfi var hleypt aftur af stað þar í byrjun þessa skóla­árs. Mygla í skóla­hús­næði er að verða eitt­hvert stærsta vanda­mál sem Reykja­víkur­borg stendur frammi fyrir.

Stöðugt berast fréttir af heilu ár­göngunum eða jafn­vel skólunum sem þarf að flytja dag­lega með rútum í önnur hverfi til að geta sótt skóla­starf í bráða­birgða­hús­næði.

Þessi vandi virðist hafa stig­magnast á allra síðustu mánuðum eins og var fjallað um í kvöld­fréttum Stöðvar 2 um helgina.

Í dag glíma í kring um tuttugu leik- og grunn­skólar á landinu við myglu­vanda­mál eða eftir­köst þeirra.

Reykja­víkur­borg hefur staðið í ströngu við að halda í þessa hröðu og ó­væntu þróun.

„Já, þetta er allavega svona með því stærra sem við erum að glíma við núna. Af því að það er svo mikil praktík í þessu; það þarf að selflytja börn, þetta hefur áhrif á fjölskyldur, kennara, starfsfólk. Þetta hefur svo mikil áhrif á daglegt líf fólks. Þetta er kannski annað en að gera risastóra skipulagsáætlun sem á að framkvæma á einhverjum X árum og við höfum ákveðinn tíma. Þetta er svo þröngur tímarammi, þannig að það er kannski það kapphlaup sem er erfitt og auðvelt að misstíga sig í því þó að við séum að reyna að gera okkar besta,“ sagði Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar í kvöldfréttum. 

Ólöf Örvarsdóttir er sviðsstjóri, umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar.vísir/dúi

Eins og staðan er í dag eru fjórir grunnskólar í borgarlandinu að glíma við mygluvandræði og níu leikskólar.

Fjölgunin hefur verið mikil á síðustu árum. Sífellt bætist í skóla sem eru myglaðir að hluta til. En hvers vegna er þessi vanda að blása út einmitt núna? Við leituðum svara hjá sérfræðingi verkfræðistofunnar EFLU sem hefur fengist við þessi mál í áraraðir.

„Ég held að þetta séu margir samverkandi þættir sem stuðla að því að við erum að fá fram í fangið mikið magn núna. Það er í fyrsta lagi að byggingarnar eru komnar á þann tíma. Mjög mikið af byggingum; skólahúsnæði, opinberum byggingum eru byggðar 1950, ´60, ´70. Það er komið að miklu viðhaldi og ef maður hefur ekki verið í fullkomnu viðhaldi má maður búast við auknum raka, leka og skemmdum sem því fylgir. Og mygla er auðvitað bara afleiðing af því að hús leka og rakaskemmdir. Síðan er það líka vitundarvakning. Við vitum meira í dag að þetta skiptir máli fyrir loftgæðin og hvernig okkur líður í húsunum,“ segir Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, innivistarsérfræðingur hjá EFLU.

Búinn að vera veikur síðan í fyrsta bekk

Segja má að mál Foss­vogs­skóla hafi rutt brautina. Mygla greindist í skólanum árið 2018 og má segja að börnin þar hafi verið á hálf­gerðum ver­gangi síðan.

Þar er enn mygla í einni álmu skólans sem nú er lokuð en rífa á þann hluta bráð­lega.

Mörg börnin, sem höfðu dvalið í hús­næðinu áður en myglan var greind urðu fár­veik. Meðal annars sonur Guð­rúnar Ástu, sem hefur enn ekki jafnað sig.

„Hann er búinn að vera veikur bara frá því í fyrsta bekk,“ segir Guð­rún Ásta.

„Hann byrjaði að sýna fyrstu ein­kenni í fyrsta bekk og svo er þetta náttúru­lega bara búið að versna síðan. Og svona frá öðrum bekk er hann bara búinn að vera mikið lasinn.“

Það tók þó langan tíma fyrir þau að átta sig hvað væri að stráknum.

„Alltaf þegar við vorum að fara í skólann á morgnana þá var hann náttúru­lega bara grátandi því hann vildi ekki fara í skólann. Og gat ekki sagt af hverju. Honum leið bara rosa­lega illa. Við erum búin að fara í gegn um alls konar ferli. Við erum búin að fara til blóð­meina­sér­fræðings, það er búið að fara til háls- nef- og eyrna­læknis, það er búið að fara til of­næmis­læknis, sál­fræðinga, fé­lags­fræðinga. Við erum bara búin að taka allan pakkann. Og sem betur fer finnst aldrei neitt en ef þú tekur þetta saman veit maður alveg hvað er að gerast. Og það var í rauninni ekki fyrr en hann er í þriðja bekk sem ég legg þetta allt saman og fatta hvað er að gerast,“ segir Guð­rún Ásta.

Sonur Guðrúnar Ástu veiktist mjög í myglu sem greindist í Fossvogsskóla.vísir/arnar

Nokkrir for­eldrar sem áttu börn í skólanum sem voru ó­venju oft veik tóku sig þá til og eftir nokkra bar­áttu var farið í að leita að myglu innan veggja skólans. Hún fannst árið 2018 og hófst þá langt og erfitt ferli í Foss­voginum sem er enn ekki lokið.

Krakkarnir voru fyrst fluttir í Þróttara­heimilið og í byggingu KSÍ í Laugar­dalnum áður en börnin voru flutt aftur í Foss­vogs­skóla þegar talið var að búið væri að hreinsa þaðan alla myglu.

„Þar hættu ein­kennin líka hjá honum. Svo fer hann aftur inn í fjórða bekk og þá byrjum við aftur að kvarta. Og í rauninni þá hefur hann, alla skóla­gönguna sína, hann er í sjöunda bekk núna og hann hefur náð einum vetri í skóla. Annars er hann aldrei búinn að vera heilan vetur og hann er iðu­lega með svona 30 til 40 veikinda­daga á skóla­árinu.“

Getur enn ekki verið inni í Fossvogsskóla

Þegar börnin voru mörg farin að finna aftur fyrir svipuðum ein­kennum var verk­fræði­stofan EFLA fengin í að taka hús­næðið út. Niður­staða þeirrar skýrslu sem kom út í fyrra var afar svört; mygla fannst víða í skólanum og lagt til að farið yrði í ítar­legar úr­bætur á hús­næðinu strax.

Í kjöl­farið fór skóla­starf fram á þremur nýjum stöðum og höfðu nú margir fengið sig full­sadda. 

Endur­bótum á hús­næðinu lauk svo í sumar og var skóla­starf aftur flutt í Foss­voginn í byrjun þessa skóla­árs.

Strákurinn finnur þó enn fyrir ein­kennum þar inni.

„Nei, hann getur ekki verið í skólanum. Það tók bara nokkra daga þá byrjuðu fyrstu ein­kenni að koma fram. Og ég vildi ekki alveg trúa því fyrst því við erum náttúru­lega búin að vera í rosa bar­áttu. Og ég trúði því ekki fyrst að þetta væri að gerast aftur. Og svo byrja blóð­nasir og þá bara tók ég hann úr skólanum. Hann er búinn að prufa einu sinni að fara inn því það var ný­búið að sótt­hreinsa og laga og gera allt en það tók hann tvo tíma þá var hann kominn með öll ein­kenni aftur. Þannig að hann er ekki í skólanum eins og er. Og ég bara vona að hann fái ein­hvers staðar inn í skóla þar sem hann getur verið,“ segir Guð­rún Ásta.

Hægt er að horfa á lengri og ítar­legri út­gáfu af við­talinu við hana sem birtist í Ís­landi í dag í gær­kvöldi í spilaranum hér að neðan:



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×