Viðskipti innlent

Hættir við framboð í stjórn Sýnar vegna afarkosta OR

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, er stjórnarformaður Sýnar. Hún verður ekki í framboði á komandi stjórnarfundi sýnar.
Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, er stjórnarformaður Sýnar. Hún verður ekki í framboði á komandi stjórnarfundi sýnar. Vísir/Vilhelm

Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Sýnar, hefur dregið framboð sitt til stjórnar félagsins til baka. Hún segir ástæðuna vera afarkosti sem OR setti eiginmanni hennar vegna meintra hagsmunaárekstra í tengslum við stjórnarsetu hennar.

Petrea var kjörin stjórnarformaður Sýnar á nýafstöðum hluthafafundi sem haldinn var í lok ágúst. Hún hefur setið í stjórn Sýnar frá árinu 2020.

Skömmu eftir hluthafafundinn í ágúst fóru hluthafar sem höfðu að baki sér rúmlega tíu prósent hlutafjár félagsins fram á nýjan hluthafafund og nýtt stjórnarkjör. Sá fundur verður haldinn 20. október 2022.

Í tilkynningu til fjölmiðla sem Petrea sendi í kvöld kemur fram að hún hafi ákveðið að draga framboð sitt til stjórnar til baka.

„Maki minn, Benedikt K. Magnússon, gegnir starfi framkvæmdastjóra fjármála hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Í lok liðinnar viku setti forstjóri OR honum afarkosti vegna starfs síns, haldi ég áfram í stjórn.

Það er mat OR að seta mín í stjórn Sýnar hafi í för með sér að eiginmaður minn geti ekki sinnt starfi sínu sem skyldi, vegna mögulegrar ásýndar hagsmunaárekstra, sem myndi því leiða af sér brottvikningu hans úr starfi. Þess vegna hef ég ákveðið að draga framboð mitt til baka,“ segir í yfirlýsingu Petreu.

Þetta segist hún gera þrátt fyrir fyrirliggjandi lögfræðiálit um að ekki sé um hagsmunaárekstra að ræða. Þá hafi bæði félög gætt þess að beita fyrirbyggjandi aðgerðum til að koma í veg fyrir slíka árekstra.

„Frá því Benedikt réð sig til starfa, fyrr á þessu ári, hef ég ekki haft neinn aðgang að þeim upplýsingum eða málum sem varða Ljósleiðarann og Sýn. Vandað hefur verið til verka hvað það varðar og þegar málefni Ljósleiðarans koma upp hef ég vikið af öllum stjórnarfundum“, segir í yfirlýsingu Petreu.

Segist hún einnig hafa óskað eftir fundi með formanni og varaformanni stjórnar OR til að fara yfir „þá þröngu stöðu“ sem hún hafi verið sett í, nokkrum dögum fyrir hluthafafund.

„Það eru mér mikil vonbrigði að OR hafi ekki séð aðra kosti í stöðunni og ekki gefið færi á samtali í þeirri von að leita lausna.“

Uppfært klukkan 21.10: Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, hefur gefið út yfirlýsingu þar sem hann svarar yfirlýsingu Petreu. Þar segir hann að það gangi ekki að framkvæmdastjóra fjármála OR sé meinaður aðgangur að tilteknum lykilupplýsingum vegna fjölskyldutengsla. Nánar má lesa um yfirlýsingu Bjarna hér.

Vísir er í eigu Sýnar.


Tengdar fréttir

Stjórnin endurspegli ekki hluthafahóp Sýnar

Í dag fóru þrjú félög, sem saman fara með 10,8 prósent hlut í Sýn, fram á að haldinn yrði annar hluthafafundur og ný stjórn yrði kjörin. Fasti ehf., sem er í eigu hjónanna Hilmars Þórs Kristinssonar og Rannveigar Eirar Einarsdóttur, er stærsta félagið í hópnum. Hilmar Þór segir að stjórn Sýnar endurspegli einfaldlega ekki hluthafahóp félagsins.

Lífeyrissjóðir settu nær öll atkvæði sín á Pál og Jóhann í stjórnarkjöri Sýnar

Þrír af stærstu lífeyrissjóðunum í hluthafahópi Sýnar, sem ráða samanlagt yfir 26,5 prósenta eignarhlut, settu nær öll atkvæði sín á þá Pál Gíslason og Jóhann Hjartarson í stjórnarkjöri fjölmiðla- og fjarskiptafélagsins í lok síðasta mánaðar og tryggðu þannig að allir þeir stjórnarmenn sem sóttust eftir endurkjöri héldu sætum sínum. Á meðal þeirra sem fékk ekki eitt einasta atkvæði frá sjóðunum var stærsti einkafjárfestirinn í Sýn. 

Jón nýr í stjórn og Petrea verður stjórnarformaður

Petrea Ingileif Guðmundsdóttir var í dag kjörin nýr stjórnarformaður Sýnar á hluthafafundi sem fór fram í höfuðstöðvum félagsins við Suðurlandsbraut í hádeginu í dag. Jón Skaftason kemur einn nýr inn í stjórn félagsins. Fjórir af fimm fyrri stjórnarmönnum sóttust eftir endurkjöri og hlutu allir kjör.

Gavia Invest stærsti hluthafi Sýnar eftir kaup á hlut Heiðars

Gavia Invest, fjárfestingafélag sem er að hluta til í eigu Reynis Grétarssonar, er orðið stærsti hluthafi fjarskipta- og fjölmiðlunarfyrirtækisins Sýnar með 14,95 prósenta hlut eftir kaup á eignarhlut Heiðars Guðjónssonar um helgina Þetta kemur fram í flöggun til Kauphallarinnar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×