Neytendur

Pappa­­skeiðarnar heyra brátt sögunni til

Bjarki Sigurðsson skrifar
Papparör, plaströr, pappaskeið og plastskeið. Allt þetta var hægt að finna fyrir rúmu ári síðan en papparörið virðist ætla vera það eina sem lifir af.
Papparör, plaströr, pappaskeið og plastskeið. Allt þetta var hægt að finna fyrir rúmu ári síðan en papparörið virðist ætla vera það eina sem lifir af. Vísir/Óttar

Eftir áramót verður hvorki boðið upp á plast- né pappaskeiðar með skyri og öðrum mjólkurvörum frá MS. Markaðsstjóri MS hvetur verslanir til að bjóða upp á skeiðar í verslunum í staðinn. 

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í vikunni var greint frá því að einhverjir stunduðu það að fjarlægja lok af skyri sem innihélt skeið til að setja á skyrdollur sem voru hvorki með lok né skeið. Best fyrir dagsetningin er prentuð á lokin á þeim skyrdollum sem fá lok en á álfilmuna á þeim sem ekki eru með loki. Því var best fyrir dagsetningin horfin af þeim skyrdollum sem lokunum var stolið af. 

Í samtali við fréttastofu segir Aðalsteinn H. Magnússon, markaðsstjóri MS, að eftir áramót verði engar minni skyrdollur með loki eða skeið. Verið er að klára birgðir af lokum og því enn nokkrar tegundir af skyri enn með skeiðum og loki. 

„Lokin eru að fara af. Við erum að klára birgðir sem við áttum af gömlum lokum. Um áramót þá verða öll lok horfin. Þá verður dagsetningin prentuð á filmuna,“ segir Aðalsteinn. 

Pappaskeiðarnar sem kynntar voru til leiks á síðasta ári sem staðgengill plastskeiðanna, við töluverð mótmæli, verða því eftir áramót einungis til í minnum manna. 

Fjallað var um breytingarnar í fréttum Stöðvar 2.

„Þetta dettur af og við hvetjum allar verslanir til að bjóða upp á skeiðar, annað hvort fríar eða til sölu á fimm krónur eða eitthvað,“ segir Aðalsteinn.

Hann minnir á að besta leiðin til að sporna gegn plasti í umhverfinu sé að koma plastumbúðum í réttan farveg. 

„Það er til farvegur fyrir plastið og fólk þarf bara að nota hann,“ segir Aðalsteinn.


Tengdar fréttir

MS fækkar og skiptir út skeiðum í kjöl­far ó­á­nægju

Mjólkursamsalan hefur ákveðið að hætta að setja skeiðar og plastlok með vissum tegundum af skyri til að draga úr plast- og umbúðamagni. Þá verður skeiðum á öðrum vörum skipt út fyrir nýjar til að bregðast við óánægju viðskiptavina.

Ó­á­nægja með skeiðar og rör úr pappa

Nokkurrar ó­­á­­nægju virðist gæta meðal neyt­enda með nýjar pappa­­skeiðar og pappa­r­ör sem hafa komið í stað ein­­nota plastá­halda. Markaðs­­stjóri MS segir fleiri breytingar væntan­­legar á næstunni til að minnka plast í um­­búðum.

Engar pappa­skeiðar með skyri frá MS í Hollandi

Pappaskeiðar sem fylgja skyri frá Ísey skyr hafa verið umdeildar um nokkurt skeið, það sama má segja um tréskeiðar sem hafa dúkkað upp á síðustu misserum. Þó virðast pappaskeiðarnar valda sérstökum ama ef marka má ummæli netverja. Á dögunum barst Vísi ábending þess efnis að annars staðar í Evrópu væri boðið upp á tréskeiðar með skyrinu í stað þeirra úr pappa sem Íslendingar kannast við.

Tapparnir fastir við gos­flöskurnar

Plastflöskur þar sem skrúfutapparnir eru áfastir flöskuhálsinum munu hefja innreið sína á íslenskan markað á næstu mánuðum. Coca Cola á Íslandi stefnir að því að byrja að notast við nýju tappana í febrúar eða mars á næsta ári, en Ölgerðin stefnir á að gera slíkt hið sama á næsta ári.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×