Handbolti

Kross 5. umferðar: Með sólgleraugu í saumaklúbbi og Þorsteinn Gauti 7/4

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rúnar Sigtryggsson er nýbúinn í augnaðgerð og var því með þessi rosalegu gleraugu á hliðarlínunni í leik Hauka og Aftureldingar.
Rúnar Sigtryggsson er nýbúinn í augnaðgerð og var því með þessi rosalegu gleraugu á hliðarlínunni í leik Hauka og Aftureldingar. vísir/hulda margrét

Fimmta umferð Olís-deildar karla í handbolta fór fram í síðustu viku. Hverjir áttu góðan dag og hverjir slæman? Hverjir þurfa að hafa áhyggjur og hvað sagði tölfræðin? Vísir fer yfir umferðina á léttum og gagnrýnum nótum.

Fram varð fyrsta liðið til að vinna Val og er ósigrað í nýja íþróttahúsinu í Úlfarsárdal, FH vann loks sigur í fimmtu tilraun, Afturelding vann sinn annan sigur í röð þegar liðið sótti Hauka heim, ÍBV heldur áfram að raða inn mörkum og rúllaði yfir Stjörnuna og KA kjöldró ÍR. Leik Harðar og Selfoss var frestað vegna veðurs.

Umfjöllun og viðtöl úr 5. umferð Olís-deildar karla

ÍBV 36-27 Stjarnan

Grótta 27-30 FH

KA 38-25 ÍR

Fram 37-34 Valur

Haukar 26-27 Afturelding

Góð umferð fyrir ...

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson skaut Val í kaf.vísir/hulda margrét

Þorstein Gauta Hjálmarsson

Þorsteinn Gauti komst í fréttirnar eftir að hann fékk rautt spjald fyrir að kasta boltanum í andlit FH-ingsins Birgis Más Birgissonar í þarsíðustu viku. Þjálfari hans, Einar Jónsson, fékk svo bann fyrir að vega að heilindum Þorsteins Gauta með ummælum sínum eftir leikinn. En Þorsteinn Gauti komst líka í fréttirnar fyrir stórkostlega frammistöðu í sigri Fram á þreföldum meisturum Vals. Honum héldu einfaldlega engin bönd og hvað þá böndin sem Valsmenn reyndu að koma á hann. Þorsteinn Gauti skoraði tíu mörk úr sextán skotum, var með fimm stoðsendingar, gaf eina vítasendingu og fiskaði tvö vítaköst. Frammistaða upp á tíu hjá leikmanni sem spilar og skýtur í öðrum takti en aðrir leikmenn deildarinnar. Á meðan þeir eru í 4/4 takti er Þorsteinn Gauti í 7/4.

Erlenda markverði

Bestu markverðir umferðarinnar koma allir erlendis frá. Nicholas Satchwell átti stjörnuleik þegar KA rústaði ÍR og varði 25 skot, eða helming þeirra skota sem hann fékk á sig. Phil Döhler var frábær í FH-markinu gegn Gróttu, sérstaklega í seinni hálfleik, og átti stærstan þátt í að Hafnfirðingar unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu. Síðan má alveg hrósa Petar Jokanovic en hann átti stórgóðan leik þegar ÍBV sigraði Stjörnuna og hefur verið góður í heimaleikjum Eyjamanna á tímabilinu. Þá varði vel Jovan Kukobat vel í marki Aftureldingar gegn Haukum þótt tölfræðin hafi ekki verið jafn áberandi góð og hjá hinum þremur.

Hornamenn KA

Heyrðu, það er líka svona sniðugt að senda boltann endrum og eins á Dag Gautason. KA-menn gerðu það allavega ítrekað í leiknum gegn ÍR-ingum og hann skoraði tíu mörk úr tíu skotum. Gauti Gunnarsson fékk einnig góða þjónustu í hægra horninu og skoraði níu mörk úr ellefu skotum. KA fékk því samtals nítján mörk frá hornamönnunum sínum gegn ÍR og skotnýting þeirra var framúrskarandi. Félagaskipti Gauta úr ÍBV og KA fengu ekki mikla athygli en þau voru einu þau bestu í Olís-deildinni. Hann fékk fá tækifæri með ÍBV á síðasta tímabili en mínútum hefur fjölgað verulega eftir að Eyjamaðurinn færði sig upp á fasta landið.

Slæm umferð fyrir ...

Snorri Steinn Guðjónsson með skeifu.vísir/hulda margrét

Valsmenn

Þeir eru ekki ósigrandi eftir allt saman! Valur tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar liðið sótti Fram heim á föstudaginn. Valsmenn voru ólíkir sjálfum sér og værukærir sem sást best á sautján töpuðum boltum í leiknum. Meistararnir voru komnir ofan í ansi djúpa holu í hálfleik, enda sex mörkum undir, 20-14. Leikmenn Vals komu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik, skoruðu fyrstu fjögur mörk hans og minnkuðu svo muninn nokkrum sinnum í eitt mark. En nær komust meistararnir ekki og þeir urðu að játa sig sigraða. Vondar fréttir fyrir Val en frábærar fyrir Olís-deildina.

Rúnar Sigtryggsson

Haukar töpuðu sínum fyrsta heimaleik á tímabilinu gegn Aftureldingu, 26-27. Eftir leikinn blés Rúnar hressilega og sakaði sína menn um að vera ekki nógu fórnfúsir og duglegir. „Ég verð að segja að ég get ekki horft á mitt lið lengur horfa á lausa bolta liggja á vellinum. Menn eru ekki að fórna sér í eitt eða neitt þetta eru eins og saumaklúbbs kerlingar sem leggja sig ekki fram með öllu sínu hjarta og þetta fer svakalega í taugarnar á mér,“ sagði Rúnar. Ummælin lögðust misvel í fólk og þetta var klárlega ekki besta stund þessa snjalla þjálfara. Rúnar var annars nýbúinn í augnaðgerð og skartaði forláta sólgleraugum á hliðarlínunni. Þau voru líklega það eftirminnilegasta við leik Hauka á laugardaginn ef frá er talin dúndurgóð frammistaða Guðmundar Braga Ástþórssonar.

Markverði Stjörnunnar

Eftir leiki ÍBV eru markvarsla Eyjamanna oftar en ekki gagnrýnd. En engin ástæða var til þess eftir stórsigurinn á Stjörnunni enda varði Petar vel. Frammistaða markvarða Garðabæjarliðsins var hins vegar ekki upp á neina fiska. Þeir Adam Thorstensen og Sigurður Dan Óskarsson vörðu þrjú skot hvor og hlutfallsmarkvarsla Stjörnunnar var 14,3 prósent. Markvarslan hefur verið vandamál hjá Stjörnunni undanfarin ár og það hefur því miður ekki lagast mikið í vetur. Arnór Freyr Stefánsson er meiddur og þótt Adam hafi allt að bera til vera einn besti markvörður deildarinnar sýnir hann það alltof sjaldan.

Fokk, við þurfum að hafa áhyggjur

Stjarnan leit svo vel út gegn FH í 1. umferðinni. Nú lítur Stjarnan ... ekki svo vel út. Stjörnumenn steinlágu í Eyjum, 36-27, og hafa aðeins fengið tvö stig í síðustu fjórum leikjum sínum. Vörn Stjörnunnar hefur verið allt í lagi á tímabilinu en hún réði ekki neitt við neitt gegn ÍBV. Og markvarslan var engin eins og áður sagði. Skyttur Stjörnunnar, fyrir utan Björgvin Hólmgeirsson, halda svo áfram að skjóta púðurskotum. Þeir Tandri Már Konráðsson, Pétur Árni Hauksson og Hergeir Grímsson voru samtals með fimm mörk í tuttugu skotum. Næstu leikir Stjörnumanna virka þægilegir á pappír en eins þeir eru að spila núna geta þeir ekki reiknað með neinum gefins sigrum.

Kýldur í magann

Miðað við meðferðina sem Allan Norðberg fékk frá Úlfi Gunnari Kjartanssyni í leik KA og ÍR virtist línumaðurinn eiga óuppgerðar sakir við Færeyinginn. Hann braut í tvígang gróflega á honum en fékk aðeins eina brottvísun í leiknum. Annað brotið var tekið fyrir í Seinni bylgjunni og Logi Geirsson sagði að um óþolandi ofbeldi væri að ræða. Skiljanlega, enda kýldi Úlfur Allan í magann (eða miltað, samkvæmt Loga). Öfugt við Fóstbræðraatriðið fræga stökk Þorsteinn Guðmundsson í gulum jakkafötum ekki út úr runna og faðmaði fórnarlambið. En brotið var ljótt og Úlfur er að öllum líkindum á leið í bann.

Eðlisfræðingur umferðarinnar

Handboltamaðurinn og áhuga eðlisfræðingurinn Árni Bragi Eyjólfsson.vísir/hulda margrét

Afturelding skoraði 28 mörk gegn Haukum en eitt þeirra var ekki dæmt gilt. Í stöðunni 19-20 fyrir Aftureldingu þrumaði Birkir Benediktsson boltanum í slána, gólfið og aftur í slána. Annars góðir dómarar leiksins dæmdu ekki mark þrátt fyrir að boltinn væri inni og þrátt fyrir að skoða atvikið á myndbandi. Í færslu á Twitter benti Árni Bragi Eyjólfsson, samherji Birkis, á að almennri eðlisfræðiþekkingu hefði verið ábótavant á þessu augnabliki og hægt er að taka undir það.

Endurkoma umferðarinnar

Róbert Sigurðarson lék sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar ÍBV tók á móti Stjörnunni. Og Akureyringurinn sneri aftur í vörn Eyjamanna með látum. Hann gaf heldur betur tóninn og var með hvorki fleiri né færri en tólf löglegar stöðvanir. Þá varði Róbert tvö skot og skoraði eitt mark. Sóknarleikur ÍBV hefur verið frábær í upphafi tímabils og með tilkomu Róberts ætti varnarleikurinn að eflast. Petar er svo farinn að verja og útlitið er bara býsna bjart fyrir Eyjamenn.

Besti ungi leikmaðurinn

Varnarmenn Aftureldingar réðu ekkert við Guðmund Braga Ástþórsson. Sem betur fer fyrir þá réðu þeir vel við aðra leikmenn Hauka.vísir/hulda margrét

Margir ungir leikmenn léku vel í 5. umferðinni en enginn betur en Guðmundur Bragi. Leikstjórnandinn átti sinn besta leik á tímabilinu þegar Haukar tóku á móti Aftureldingu á laugardaginn. Hann skoraði ellefu mörk úr tólf skotum, gaf tvær stoðsendingar og þrjár vítasendingar. Mögnuð frammistaða Guðmundar Braga dugði þó skammt því hans gömlu félagar í Aftureldingu unnu leikinn með eins marks mun, 26-27.

Tölfræði sem stakk í augun

ÍBV skoraði hvorki fleiri né færri en sextán mörk með skotum fyrir utan gegn Stjörnunni. Það sem vekur enn meiri athygli er hversu frábæra skotnýtingu Eyjamenn voru með fyrir utan. Þeir tóku alls 23 skot þaðan og sextán þeirra fóru inn sem gerir framúrskarandi sjötíu prósent skotnýtingu.

Menn leiksins samkvæmt HB Statz

Arnór Viðarsson (ÍBV) - 9,19

Phil Döhler (FH) - 7,98

Nicholas Satchwell (KA) - 10,0

Þorsteinn Gauti Hjálmarsson (Fram) - 10,0

Guðmundur Bragi Ástþórsson (Haukar) - 9,75

Handboltarokk umferðarinnar

Allir sem voru unglingar í kringum aldamótin muna eftir því að koma heim úr skólanum og stilla á PoppTV. Sum lög og myndbönd sem þar rúlluðu daginn út og daginn inn eru gróin inn í heilabörkinn. „It's Been Awhile“ með The Staind var eitt þeirra laga. Þess má geta að Fred Durst leikstýrði hinu mjög svo dramatíska myndbandi sem er ágætis forvörn fyrir ógætilega notkun eldfæra.

Næsta umferð

Svona lítur 6. umferð Olís-deildar karla út.hsí

Tengdar fréttir

„Mér finnst allt spennandi við Fram þessa dagana“

„Þeir dreifðu álaginu, mikið. Þeir eru með breidd og þetta er lið sem öll liðin í deildinni þurfa að taka alvarlega,“ sagði Stefán Árni Pálsson, þáttastjórnandi Seinni bylgjunnar um lið Fram sem gerði sér lítið fyrir og lagði Íslandsmeistara Vals í Olís deild karla á dögunum.

Broti Úlfs vísað til aganefndar

Framkvæmdastjóri HSÍ hefur vísað broti Úlfs Gunnars Kjartanssonar í leik KA og ÍR til aganefndar sambandsins.

„Þoli ekki svona ofbeldi í íþróttum“

Logi Geirsson vill að ÍR-ingurinn Úlfur Gunnar Kjartansson fái langt bann fyrir að kýla Allan Norðberg, leikmann KA, í leik liðanna í Olís-deild karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×