Innlent

For­seta­hlaupið vakti mikla lukku

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Gleðin réð ríkjum í Forsetahlaupinu í gær og mátti þar sjá þátttakendur á öllum aldri.
Gleðin réð ríkjum í Forsetahlaupinu í gær og mátti þar sjá þátttakendur á öllum aldri. UMFÍ

Forsetahlaup UMFÍ var haldið í fyrsta sinn með pompi og prakt á Álftanesi í gær. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson hljóp í báðum hlaupunum sem stóðu þátttakendum til boða og veitti verðlaun að þeim loknum. UMFÍ vonast með hlaupinu til þess að hvetja fólk til þess að hreyfa sig meira í góðum félagsskap.

Rúmlega 200 þátttakendur voru skráðir í Forsetahlaupið en tvær vegalengdir voru í boði annars vegar ein míla eða um 1,6 kílómetrar og hins vegar 5 kílómetrar. Lengri hlaupaleiðin náði að hlaðinu á Bessastöðum en þátttakendur snéru við þegar þangað var komið.

Gleðin réð ríkjum í Forsetahlaupinu í gær og mátti þar sjá þátttakendur á öllum aldri.UMFÍ

Aðspurður af hverju viðburðurinn hafi verið nefndur „Forsetahlaupið“ segir Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, kynningarfulltrúi UMFÍ að Guðni sé verndari UMFÍ og því liggi nafngiftin beinast við. UMFÍ vinni nú að því að uppfæra viðburði félagsins eftir að Landsmót UMFÍ var lagt niður.

Hann nefnir erlenda fyrirmynd Forsetahlaupsins frá Danmörku sem nefnist „Royal Run“ þar sem Friðrik krónprins hleypur alltaf með þátttakendum. „Við erum svona að prófa okkur bara áfram og það hefur bara verið mjög skemmtilegt og vakið mikla gleði,“ segir Jón.

Gleðin réð ríkjum í Forsetahlaupinu í gær og mátti þar sjá þátttakendur á öllum aldri.UMFÍ

Aðspurður hvort viðburðurinn verði haldinn aftur á næsta ári segist Jón engu lofa en hann útiloki það ekki þar sem framkvæmdin gekk eins vel og raun ber vitni.

Dæmi um nýja viðburði hjá félaginu eru til dæmis Forsetahlaupið og Hundahlaupið sem haldið var á Seltjarnarnesi í ágúst síðastliðnum.

„Við erum bara að gera íþróttaiðkun skemmtilegri fyrir alla,“ segir Jón. Markmiðið með nýjum viðburðum sé að fá fólk til þess að hreyfa sig saman en og endurspegli slagorð UMFÍ sem sé „Allir með.“

Gleðin réð ríkjum í Forsetahlaupinu í gær og mátti þar sjá þátttakendur á öllum aldri.UMFÍ

Gleðin réð ríkjum í Forsetahlaupinu í gær og mátti þar sjá þátttakendur á öllum aldri.UMFÍ

Gleðin réð ríkjum í Forsetahlaupinu í gær og mátti þar sjá þátttakendur á öllum aldri.UMFÍ

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×