Lífið

Alfreð Gísla og Hrund Gunnsteins fögnuðu saman um helgina

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Alfreð Gíslason og Hrund Gunnsteinsdóttir eru glæsilegt par.
Alfreð Gíslason og Hrund Gunnsteinsdóttir eru glæsilegt par. Samsett mynd

Alfreð Gíslason handboltakempa og Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu eru eitt heitasta nýja par landsins um þessar mundir. Parið fagnaði 48 ára afmæli Hrundar um helgina í faðmi fjölskyldu og vina en þau hafa verið að hittast undanfarna mánuði.

Alfreð er einn besti handboltamaður sem Ísland hefur alið. Að loknum ferli sínum sem atvinnumaður og landsliðsmaður sneri hann sér að þjálfun og er án nokkurs vafa sigursælasti handboltaþjálfari Íslands.

Alfreð, sem er 62 ára, starfaði lengst af sem þjálfari Kiel eða frá árinu 2008 þangað til hann lét af störfum hjá þýska stórveldinu sumarið 2019. Undir hans stjórn varð Kiel sex sinnum þýskur meistari, sex sinnum bikarmeistari, vann Meistaradeild Evrópu tvisvar sinnum og EHF-bikarinn einu sinni.

Akureyringurinn var landsliðsþjálfari Íslands 2006 til 2008 og stýrði íslenska liðinu á HM 2007 og EM 2008.

Hrund er uppalin í Garðabænum en bjó um tíma í London þar sem hún lauk MSc gráðu í þró­un­ar­fræðum frá London School of Economics. Þá er hún með diplóma­gráðu frá Har­vard Kenn­e­dy School í leiðtoga­fræðum og op­in­berri stjórn­sýslu, auk þess sem hún hef­ur stundað leiðtoga- og stjón­enda­nám við Yale-há­skóla, Stan­ford og Oxford Saïd Bus­iness School.

Hrund hefur víðtæka ráðgjaf­ar- og stjórn­un­ar­reynslu á Íslandi sem og á alþjóðleg­um vett­vangi, hef­ur setið í fjöl­mörg­um stjórn­um og sér­fræðinga­hóp­um og er stjórn­ar­formaður Tækniþró­un­ar­sjóðs, hef­ur starfað sem stjórn­andi, ráðgjafi og op­in­ber starfsmaður Sam­einuðu þjóðanna.

Hún hefur líka látið að sér kveða við heimildarmyndargerð. Hún leikstýrði og framleiddi heimildarmyndina Innsæi sem sýnd var víða um heim árið 2016.

Það er óhætt að segja að parið blómstri ef marka má myndir sem birtar hafa verið á samfélagsmiðlum undanfarna daga. Hrund er sjálf af mikilli handboltafjölskyldu. Pabbi hennar Gunnsteinn Skúlason var mikil handboltakempa og sömuleiðis Guðný og Skúli systkini hennar. Sjálf spilaði Hrund handbolta þótt hún hafi látið staðar numið fyrr en systkini sín og vann titla með Stjörnunni á yngri árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×