Golf

Buðu Tiger Woods á milli 95 til 109 milljarða til að svíkja lit

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods er að reyna að keppa á stóru mótunum á bandarísku mótaröðinni.
Tiger Woods er að reyna að keppa á stóru mótunum á bandarísku mótaröðinni. Getty/Andrew Redington

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods fékk sannkallaða risatilboð frá nýju golfmótaröðinni í Sádí Arabíu samkvæmt framkvæmdastjóra hennar Greg Norman.

Greg Norman sagði frá því í sjónvarpsviðtali við Tucker Carlson á Fox að LIV hafi boðið í kringum sjö hundruð til átta hundruð Bandaríkjadala til að ganga til liðs við sig en það eru á bilinu 95 til 109 milljarðar íslenskra króna.

Tiger Woods hafnaði tilboðinu en bandaríska mótaröðin er í stríði við LIV og bannar öllum kylfingum þátttöku á sínum mótum taki þeir tilboði Sádanna.

Norman segir að Woods hafi fengið tilboðið áður en hann sjálfur kom að borðinu. Tiger hefur unnið fimmtán risatitla og er gríðarlega vinsæll kylfingur.

„Þessar tölur voru boðnar áður en ég varð framkvæmdastjóri. Sjáðu til Tiger kemur hlutum á hreyfingu ekki satt. Svo auðvitað horfa menn til þess besta af þeim bestu. Þeir töluðu við hann fyrir minn tíma og þessi tala er í eitthvað í nágrenni við það sem þeir buðu honum,“ sagði Greg Norman í viðtalinu sem fór fram á golfvelli Donalds Trump í Bedminster í New Jersey þar sem LIV hélt golfmót um helgina.

Hinn 46 ára gamli Tiger hefur verið einn öflugasti baráttumaður PGA í baráttunni við LIV en Sádarnir hafa reynt að stela bestu kylfinga heims með gylliboðum. Margir hafa freistast og fórnað PGA-mótaröðinni í leiðinni.

Woods gagnrýndi þá kylfinga sem sömdu við LIV. „Ég er ósammála þeim. Ég tel að þeir hafa snúið bakinu við því sem hefur leyft þeim að komast í þessa stöðu sem þeir eru í dag,“ sagði Tiger Woods á Opna breska meistaramótinu.

Það fylgir auðvitað sögunni að Tiger er í engum peningavandræðum enda þegar orðinn milljarðamæringur og er með gríðarlegar tekjur í gegnum auglýsingasamninga þótt að verðlaunafé hans sé að skornum skammti þessa dagana eftir bílslysið örlagaríka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×