Tíska og hönnun

„Stíllinn minn verður af­slappaðri með tímanum“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Sigríður Ágústa er viðmælandi vikunnar í Tískutali.
Sigríður Ágústa er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Aðsend

Hönnuðurinn Sigríður Ágústa Finnbogadóttir er mikill tískuspegúlant sem hefur meðal annars hannað ýmsan sviðsklæðnað á söngkonuna Bríeti. Hún lýsir stílnum sínum sem hversdagslegum með örlitlum glamúr, sækir innblástur í ólík tímabil tískusögunnar og hefur gaman að því að sjá persónulegan stíl fólks skína í fatavali. Sigríður Ágústa er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Tískutal er fastur liður á Vísi þar sem rætt er við ólíka einstaklinga um þeirra persónulega stíl og hvernig tíska nýtist þeim í daglegu lífi. Klæðaburður er sannarlega fjölbreytt listform en við fáum að skyggnast inn í ólíka fataskápa og fræðast nánar um það merkilega tjáningarform sem tíska er fyrir hverjum og einum viðmælanda.

Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna?

Það sem mér finnst skemmtilegast við tískuna er að sjá persónulegan stíl fólks fá að njóta sín. Mér finnst svo gaman að sjá þegar fólk er óhrætt við að prófa sig áfram í fatavali og leggur metnað í það.

Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju?

Ég á nokkrar uppáhalds flíkur. Það eru oftast þær flíkur sem eiga sér einhverja sögu og/eða ég hef átt lengi. Svona flíkur sem passa við allt sem ég á og munu fylgja mér áfram.

Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni?

Ég ver frekar litlum tíma dags daglega í að velja föt.

Þar spilar inn í að ég er með vinnustofu heima og með tveggja ára aðstoðarkonu sem byrjar ekki á leikskóla fyrr en í haust. Þá gríp ég í þægindin og praktíkina fram yfir glamúrinn.

Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?

Hversdagslegur með örlitlum glamúr. Dagsdaglega klæðist ég oftast gallabuxum, peysu og strigaskóm. Það er orðinn eins konar einkennisklæðnaður. Það er líka auðvelt að fríska upp á þann klæðnað. Bæta við skarti og skemmtilegri yfirhöfn þá er maður strax orðin aðeins meira pæjó. 

En þegar tilefni gefst þá skreyti ég mig meira og finnst gaman að para saman ólíkar flíkur. Stórar ermar, falleg form og krúttleg smáatriði heilla mig mikið.

Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá?

Já algjörlega. Hann verður afslappaðri með tímanum.

Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni?

Ég sæki innblástur í mismunandi tímabil tískusögunnar. Þau hafa öll ákveðinn sjarma (sum meiri en önnur).

Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði?

Ég veit bara um nokkra stíla sem mér finnst ekki klæða mig vel. Þá sækist ég ekki í það fyrir sjálfa mig, en finnst kannski agalega smart á öðrum. En ég er ekki með nein boð og bönn.

Ég lét þó einhvern tímann hafa það eftir mér fyrir mörgum árum að ég færi ekki í crocs og buff. Fjölskyldan mín gerir mikið grín af þessu og finnst agalega fyndið að lána börnunum mínum buff.

Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju?

Eftirminnilegasta flík sem ég hef klæðst er sennilega kjóll sem mamma saumaði sér þegar hún var ung, seinna klæddust eldri systur mínar honum og síðan ég þegar ég var unglingur. 

Þetta er svo smart kjóll, brúnn með blómamynstri, stuttum ermum, kraga og fallegum smáatriðum sem gera samt svo mikið.

Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku?

Mér finnst mikilvægt að velja gæði, góð snið, fara eftir þvottaleiðbeiningum og hugsa almennt vel um fötin sín. Það má svo laga og/eða breyta þeim flíkum sem eru til inní skáp.

Ég mæli með að fólk læri inn á sinn persónulega stíl. Finni út úr því hvaða snið og litir klæða þau best og þeim líði vel í. Nota það sem er til inn í skáp og vera óhrædd að para saman liti, mynstur og ólíkar flíkur. Hafa bara svolítið gaman að þessu.

Tengdar fréttir

„Ekki láta fyrirfram ákveðna samfélags staðla ráða því hverju þú klæðist“

Ragnheiður Anna Róbertsdóttir er leiðsögukona, ferðaskipuleggjandi og mikil áhugakona um tísku sem hefur að eigin sögn alltaf verið mjög glysgjörn. Hún bíður ekki eftir tilefni til að nota fínar flíkur og er dugleg að láta gera við fötin sín frekar en að kaupa alltaf nýtt. Ragnheiður Anna er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Minntu mig á að flytja út í geim ef að 2012 tískan kemur aftur“

Ísak Emanúel Glad Róbertsson er lífskúnstner og tískuspégúlant sem hefur farið í gegnum hin ýmsu tísku tímabil. Hann sækir meðal annars innblástur í gamla búbónda og nettar gellur og er mikill jakka-kall. Ísak Emanúel er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Klæðaburður er í raun tungumál, tjáning og samskiptakerfi án orða“

Tanja Huld Levý Guðmundsdóttir er búninga-, tísku-, textíl- og leikmyndahönnuður sem hefur gaman af litagleði og elskar fjölbreytileikann sem tískan býr yfir. Hún lýsir stílnum sínum sem mjög flæðandi en rauði þráðurinn í klæðaburði hjá henni hefur alltaf verið dass af húmor. Tanja er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Flík lítur aldrei vel út á manneskju sem líður illa í henni“

Stílistinn og listræni stjórnandinn Ellen Loftsdóttir er sérfræðingur þegar það kemur að tísku og hefur unnið í heimi tískunnar í áratugi. Hún var meðal annars stílisti Systra á Eurovision í ár og hefur unnið með einhverjum stærstu tískuhúsum heimsins. Ellen klæðist gjarnan svörtu og segir innsæið sterkasta tólið við að finna sinn eigin stíl. Ellen Loftsdóttir er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Hef oftast hugsað um tísku sem eins konar ofurhetjubúning“

Sindri Snær Einarsson er þrítugur Reykvíkingur sem hefur alla tíð haft brennandi áhuga á tísku. Hann hefur aldrei trúað á boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði og man eiginlega alltaf í hverju hann var hverju sinni. Sindri Snær er viðmælandi vikunnar í Tískutali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×