Bílar

Dacia Duster mest nýskráða bifreiðin í júní

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Dacia Duster í 2022 útlitinu. Duster var mest nýskráða bifreiðin í júní.
Dacia Duster í 2022 útlitinu. Duster var mest nýskráða bifreiðin í júní.

Toyota var mest nýskráða vörumerkið í nýliðnum júní mánuði með 596 nýskráningar, Kia var í öðru sæti með 256 og Hyundai í þriðja með 223. Mest selda undirtegundin var Dacia Duster með 202 bíla nýskráða í júní, samkvæmt upplýsingum á vef Samgöngustofu.

Fjöldi nýskráninga eftir framleiðanda í júní.

Samtals voru 2746 bifreiðar nýskráðar í júní. Það er fækkun á milli mánaða, en í maí voru 3187 bifreiðar nýskráðar. Það er samdráttur sem nemur um 14%. Á milli ára er samdrátturinn enn meiri eða 33,3% en alls voru nýskráðar 4117 bifreiðar í júní í fyrra.

Toyota Rav4 er næst mest nýskráða undirtegundin í júní með 182 bíla og Land Crusier í þriðja sæti með 171 bíl. Hyundai i20 er í fjórða sæti með 96 bíla á meðan Toyota Yaris er í fimmta með 95 bíla.

Fjöldi nýskráðra ökutækja eftir orkugjafa í júní.

Orkugjafar

Nýskráningar á Duster og Land Cruiser halda uppi nýskráningum dísel bíla. Alls voru 788 díselbílar nýskráðir. Allir Duster-ar sem voru skráðir í júní og allir Land Cruiser-arnir voru dísel bílar.

Bensín var næst algengasti orkugjafi nýskráðra bíla í júní með 608 nýskráða bíla. Tengiltvinnbílar voru í þriðja sæti með 568 bíla og bílar með lokað tvinn kerfi í fjórða með 523 bíla. Rafmagnið var svo fimmti vinsælasti kosturinn í júní með 443 bíla nýskráða.


Tengdar fréttir

Toyota með flestar nýskráningar í maí

Toyota trónir á toppi nýskráðra nýrra bifreiða í maí mánuði með 568 bifreiðar nýskráðar. Mitsubishi er í öðru sæti með 428 nýskráðar bifreiðar. Hyundai í þriðja sæti 213 nýskráðar bifreiðar. Alls voru 3573 ökutæki nýskráð í maí, þar af voru 2.367 nýjar bifreiðar. Fréttin byggir á tölum af vef Samgöngustofu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×