Tónlist

Frumsýning á tónlistarmyndbandi Karítasar: „Ákveðin tilfinning sem flæðir um mann“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Karítas frumsýnir tónlistarmyndband við lagið Carried Away hjá Lífinu á Vísi. Myndbandið má finna hér fyrir neðan.
Karítas frumsýnir tónlistarmyndband við lagið Carried Away hjá Lífinu á Vísi. Myndbandið má finna hér fyrir neðan. Berglaug

Tónlistarkonan, Reykjavíkurdóttirin og plötusnúðurinn Karítas Óðinsdóttir sendi frá sér lagið Carried Away 27. maí síðastliðinn. Hún frumsýnir nú hér á Vísi tónlistarmyndbandið við lagið, sem fjallar meðal annars um að gefa einhverjum síðasta tækifærið.

Hér má sjá myndbandið:

Blaðamaður tók púlsinn á Karítas og fékk að heyra nánar frá hennar listræna ferli.

Hvaðan sóttirðu innblástur fyrir laginu?

Alls staðar frá, en fyrst og fremst í það sem ég hef upplifað sjálf. 

Annars þá fannst mér hugmyndin um að gefa einhverjum síðasta tækifærið vera frekar ljúfsárt viðfangsefni þar sem að margir geta tengt við það.

​​Hefur myndbandið verið lengi í bígerð og hvernig hefur undirbúningsferlið gengið?

Myndbandið er er búið að vera í bígerð í nokkrar vikur og undirbúningsferlið gekk frekar hratt fyrir sig. Ég hitti Berglaugu og Júlíu á kaffihúsi og við brainstormuðum þær hugmyndir sem okkur leist vel á. Við vorum allar sammála um að við vildum fókusa á að ná tilfinningu lagsins fram í myndbandinu með minimalískum hætti.

Hvernig fer lag frá því að verða hugmynd hjá þér yfir í að verða tilbúið?

Það er mjög misjafnt, sum lög verða til á klukkutíma, önnur taka einhverja mánuði, stundum fæ ég einhverja hugmynd sem ég geymi ofan í skúffu en klára svo átta árum seinna eins og eitt lag sem var á síðustu plötu, svo það er allur gangur á þessu. En fyrir þetta lag þá myndi ég segja að það hafi tekið nokkra mánuði að klára það.

Hvað finnst þér skemmtilegast við að semja tónlist?

Þegar lögin eru að verða til og maður kemst á smá roll. 

Það er alveg ákveðin tilfinning sem flæðir um mann og þá veit maður að eitthvað spennandi er að gerast.

Hvað er á döfinni?

Ég er að halda tónleika í Mengi ásamt Áslaugu Dungal og Fríd 15. júní næstkomandi. Svo verð ég að DJ-a á alls konar viðburðum í sumar og koma fram með Reykjavíkurdætrum. Við spilum á Þjóðhátíð í ár og erum mjög spenntar fyrir því.

Myndbandið er gert í samstarfi við Rough Cult og Sticky Records en Berglaug og Júlía Grönvald skutu myndbandið. Elín Stefáns sá um förðun og Inga Ævars ​stíliseraði. Einar Már Harðarson pródúseraði lagið og Gestur Sveinsson hljóðblandaði.


Tengdar fréttir

Föstudagsplaylisti Karítasar Óðinsdóttur

Plötusnúðurinn Karítas raðaði saman föstudags-playlistanum okkar þennan föstudaginn. Um er að ræða ákveðið forskot á sæluna því að Karítas spilar á Prikinu á morgun og ekki ólíklegt að eitthvað af þessum lögum fái að hljóma þar á bæ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×