Viðskipti innlent

Skulda­bréf Ljós­leiðarans komin í Kaup­höllina

Eiður Þór Árnason skrifar
Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans.
Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans. Ljósleiðarinn

Skuldabréf Ljósleiðarans, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur, voru tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í dag að fenginni staðfestingu fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á útgefenda- og verðbréfalýsingu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ljósleiðaranum en með útgáfunni stendur til að fjármagna yfirstandandi lagningu ljósleiðara til heimila, fyrirtækja og stofnana á Selfossi, Eyrarbakka, Stokkseyri, í Reykjanesbæ, Vogum og undirbúning lagningar í Grindavík. Einnig er vaxandi þungi sagður vera í tengingu nýbygginga í sveitarfélögum sem Ljósleiðarinn hafi þegar tengt.

„Þá er unnið að þeirri framtíðarsýn fyrirtækisins að aukin samkeppni á fjarskiptamarkaði náist með nýjum landshring fjarskipta. Ljósleiðarinn leitar samstarfs séu önnur innviðafyrirtæki að leggja nýja strengi eða lagnir en hefur einnig frumkvæði að lagnaleiðum og býður þá öðrum aðild að lagningunni.“

Að sögn stjórnenda dregur slíkt samstarf úr umhverfisáhrifum framkvæmdanna og eykur hagkvæmni þeirra. Fjárfestingarnar stuðli að því markmiði stjórnvalda að Ísland verði fulltengt ljósleiðara.

Fram kemur í tilkynningu að um sé að ræða græn skuldabréf í skuldabréfaflokknum LL 010641 GB sem hafi hlotið viðurkenningu óháðs aðila sem „dökkgrænn.“

Náð að lækka fjármagnskostnað

Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans, segir að um sé að ræða stóran dag fyrir fyrirtækið og að opinber skráning bréfanna veiti því aðhald í verkefnum, almennum rekstri og nauðsynlegri uppbyggingu fyrir íslenskt samfélag.

Ljósleiðarinn hafi staðið að uppbyggingu öflugra fjarskiptainnviða á síðustu áratugum og innleiðing 5G fjarskiptakerfa muni reyna enn frekar á ljósleiðaranet landsins.

„Í útboðum okkar á grænum skuldabréfum fyrirtækisins síðustu mánuði höfum við náð því markmiði að lækka fjármagnskostnað við okkar metnaðarfullu og mikilvægu uppbyggingarverkefni. Enn frekari hagkvæmni þeirra höfum við tryggt með samningum við fjarskiptafyrirtæki, nú síðast við Farice sem er einmitt þessa dagana að styrkja tengingu Íslands við umheiminn með nýjum sæstreng til Írlands,“ segir Erling Freyr í tilkynningu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×