Körfubolti

Börn Valsara fyrir ónæði vegna miðasölunnar

Sindri Sverrisson skrifar
Það hefur nánast verið slegist um miðana 1.500 sem í boði eru á leik Vals og Tindastóls annað kvöld.
Það hefur nánast verið slegist um miðana 1.500 sem í boði eru á leik Vals og Tindastóls annað kvöld. vísir/bára

Körfuknattleiksdeild Vals hefur sent frá sér tilkynningu varðandi miðasölu á oddaleik Vals og Tindastóls í Subway-deild karla annað kvöld. Þar segir að starfsfólk og stjórnarfólk Vals, og jafnvel börn þess, hafi orðið fyrir ónæði vegna miðasölunnar.

Bæði lið hafa beðið lengi eftir Íslandsmeistaratitli í körfubolta og á morgun mun biðinni ljúka hjá öðru þeirra.

Stuðningsmenn úr röðum Skagfirðinga hafa á samfélagsmiðlum gagnrýnt fyrirkomulag miðasölunnar, sem er í höndum Vals enda um heimaleik liðsins að ræða, og kjaftasögur verið í gangi um að miðar sem seldir voru á Hlíðarenda í gær hafi verið teknir til baka þegar í ljós hafi komið að um stuðningsmenn Tindastóls væri að ræða.

Valsmenn segja þetta einfaldlega dylgjur og rangfærslur.

Um 1.500 manns geta mætt í Origo-höllina annað kvöld, nema að leyfi fáist á síðustu stundu fyrir því að fjölga sætum. Valur ákvað að 500 þessara miða færu til Tindastóls sem selur miða klukkan 17 á Sauðárkróki í dag en þar var löng röð þegar byrjuð að myndast tveimur tímum fyrr.

Sögðust styðja Val til að fá miða

Valsmenn settu hins vegar hina 1.000 miðana í sölu á Hlíðarenda í hádeginu í gær og þeir seldust strax upp. Valsmenn höfðu hugsað sér að þeir miðar yrðu fyrir stuðningsfólk Vals en í tilkynningu þeirra segir að tæplega 200 miðanna hafi engu að síður farið til stuðningsfólks Tindastóls sem hafi sagst styðja Val til að fá miða.

Í tilkynningunni segir einnig að starfsfólk Vals, stjórnarfólk og jafnvel börn þess hafi orðið fyrir ónæði vegna tengsla sinna við félagið síðustu daga og á það bent að það sé algjörlega óásættanlegt.

Ljóst er að þau sem ekki hafa hreppt miða á leikinn eru tilbúin að leggja ýmislegt á sig til að fá miða og auglýsingar á borð við þessa hér að neðan, frá markahæsta manni Bestu deildarinnar í fótbolta, eru ekki einsdæmi.

Tilkynningu körfuknattleiksdeildar Vals má lesa hér að neðan.

Að gefnu tilefni

Á morgun fer fram fimmti og síðasti leikurinn í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla. Leikirnir til þessa hafa verið frábær skemmtun og góð auglýsing fyrir körfuboltann. Körfuknattleikdeild Vals þakkar öllum sem hafa mætt á leikina og stutt sín lið og öllum sjálfboðaliðum sömuleiðis.

Við í KKD Vals viljum hins vegar bregðast við óvæginni og ósanngjarnri umræðu um framkvæmd miðasölu sem hefur verið byggð á dylgjum og rangfærslum. Starfsfólk, stjórnarfólk Vals og jafnvel börn þeirra hafa orðið fyrir ónæði vegna tengsla sinna við félagið síðustu daga. Það er auðvitað algjörlega óásættanlegt.

Staðreyndir vegna miðasölu á þennan oddaleik:

1. Tindastóll fékk 500 miða til að selja. Þeir miðar eru seldir í Skagafirði kl. 17 í dag.

2. Í sérstakri Valssölu á Hlíðarenda í gær fékk stuðningsfólk Tindastóls 192 miða. Stuðingsfólk Tindastóls mætti í röðina og sagðist styðja Val til þess að komast yfir miða. Því hefur verið haldið fram að þessir miðar hafi verið endurgreiddir en það er ekki rétt. Miðunum var breytt í gestamiða. Tindastóll hefur því fengið 700 miða á þennan leik.

3. Lokuð miðasala á netinu fyrir ársmiðahafa og vildarvini Vals var einnig trufluð af stuðningsmönnum Tindastóls. Fólk sem fór inn á þá miðasölu og ekki er stuðningsfólk Vals fékk endurgreidda þá miða sem það komst yfir.

Þetta eru staðreyndir málsins.

Með körfuboltakveðjum og von um að fólk láti ekki kappið bera fegurðina ofurliði.

KKD Vals


Tengdar fréttir

Ferðasaga á Krókinn: Klikkað kvöld meðal kúreka og krókódíla í Síkinu

„Má ég heyra?“ spyrja Úlfur Úlfur og Sverrir Bergmann í nýju stuðningsmannalagi Tindastóls. Og þeir heyrðu svo sannarlega í Skagafirðinum í fjórða leik Stólanna og Valsmanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla í fyrrakvöld. Leikur sem líður þeim sem á horfðu seint úr minni, hvað þá þeim sem voru á staðnum.

Miðarnir á oddaleikinn ruku út

Þegar er orðið uppselt á oddaleik Vals og Tindastóls í körfubolta karla sem fram fer í Origo-höllinni á Hlíðarenda á miðvikudagskvöld.

Aldrei áður verið fleiri framlengingar í einni úrslitakeppni

Tindastóll tryggði sér oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn með dramatískum sigri á Val í troðfullu Síkinu á Sauðárkróki í gærkvöldi. Úrslitin réðust í framlengingu eins og í fjórum öðrum leikjum í úrslitakeppni Subway-deildar karla í ár sem er met.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×