Erlent

Í­búar Qu­eens­land gætu þurft að flýja heimili sín vegna flóða

Atli Ísleifsson og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa
Flóðin eru af völdum mikils óveðurs sem gengið hefur yfir landshlutann en veðrið nálgast nú suðausturströnd Ástralíu.
Flóðin eru af völdum mikils óveðurs sem gengið hefur yfir landshlutann en veðrið nálgast nú suðausturströnd Ástralíu. EPA

Fjöldi íbúa í fylkinu Queensland í Ástralíu hefur þurft að flýja heimili sín vegna mikilla flóða á svæðinu.

Tugir flóðaviðvarana eru í gildi víða um Queensland í dag og eru margir til viðbótar tilbúnir til að flýja ef þess gerist þörf. Einn drukknaði í flóði sem skall í norðurhluta fylkisins fyrr í vikunni. 

Flóðin eru af völdum mikils óveðurs sem gengið hefur yfir landshlutann en veðrið nálgast nú suðausturströnd Ástralíu þar sem eru fjölmennar borgir á borð við Brisbane. Veðurstofa Ástralíu varar svo við því að enn meira vatnsveður sé í kortunum. 

Ástralir ganga til kosninga þann 21. maí næstkomandi og þar eru loftslagsbreytingar á meðal helstu kosningamála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×