Körfubolti

Draumaframmistaða Doncic dugði ekki til

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Luka Doncic var sjóðheitur gegn Phoenix Suns en vantaði meiri hjálp frá samherjum sínum.
Luka Doncic var sjóðheitur gegn Phoenix Suns en vantaði meiri hjálp frá samherjum sínum. getty/Christian Petersen

Mögnuð frammistaða Lukas Doncic dugði skammt fyrir Dallas Mavericks þegar liðið tapaði fyrir Phoenix Suns, 121-114, í undanúrslitum Vesturdeildar NBA.

Doncic skoraði 45 stig, tók tólf fráköst og gaf átta stoðsendingar. Maxi Kleber skoraði nítján stig en aðrir leikmenn Dallas náðu sér ekki á strik.

Phoenix leiddi allan leikinn, vann frákastabaráttuna með fimmtán og vann sinn tíunda sigur á Dallas í röð.

DeAndre Ayton skoraði 25 stig fyrir Phoenix og Devin Booker var með 23 stig, níu fráköst og átta stoðsendingar. Chris Paul skoraði nítján stig.

Miami Heat tók forystuna í einvíginu gegn Philadelphia 76ers í undanúrslitum Austurdeildarinnar með 106-92 sigri í Flórída í nótt.

Joel Embiid lék ekki með Philadelphia og ekki er búist við því að hann verði klár í slaginn fyrir annan leik liðanna. Án hans átti Sixers ekki mikla möguleika. Tobias Harris skoraði 27 stig en James Harden var aðeins með sextán stig úr þrettán skotum.

Tyler Herro skoraði 25 stig af bekknum fyrir Miami og Bam Adebayo var með 24 stig og tólf fráköst. Sá síðarnefndi nýtti sér fjarveru Embiids til hins ítrasta og hitti úr átta af tíu skotum sínum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×