Handbolti

Elverum áfram í undanúrslit

Atli Arason skrifar
Enginn skoraði fleiri mörk en Orri Freyr í kvöld.
Enginn skoraði fleiri mörk en Orri Freyr í kvöld. https://www.ostlendingen.no/

Elverum er komið áfram í undanúrslit í úrslitakeppninnar í norska handboltanum eftir 21-38 sigur á útivelli gegn Baekkelaeget.

Leikurinn í kvöld var í 8-liða úrslitum en Elverum vinnur seríuna 2-0.

Orri Freyr Þorkelsson og Aron Dagur Pálsson leika báðir með Elverum en Orri Freyr var markahæsti leikmaður vallarins með 7 mörk og Aron Dagur skoraði eitt.

Elverum er ríkjandi deildarmeistari og eru nú komnir áfram í undanúrslit þar sem mótherjinn verður lið Arendal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×