Tíska og hönnun

Tíska og stjórnmál: „Miðflokksmenn og Sósíalistar hafa engan áhuga á tísku“

Helgi Ómarsson skrifar
Linda Björg Árnadótir skoðaði tísku í tengslum við stjórnmálin.
Linda Björg Árnadótir skoðaði tísku í tengslum við stjórnmálin. Samsett

Linda Björg Árnadótir yfirhönnuður Scintilla og doktorsnemi hefur síðustu tvö ár verið að sinna doktorsnámi í félagsfræði við Háskóla Íslands þar sem hún gerir rannsóknir á fræðasviði tísku.

Tíska og stjórnmál

Hún vann á dögunum að rannsóknarverkefni þar sem meðal annars stjórnmál og tíska héldust í hendur með gríðarlega skemmtilegum niðurstöðum og við fengum að forvitnast örlítið meira.

„Í verkefninu geri ég fjórar mismunandi rannsóknir þar sem ég blanda saman megindlegum og eigindlegum rannsóknaraðferðum.

Nýlega fékk ég niðurstöður spurningalistakönnunar þar sem ég spyr fólk um viðhorf til tísku og klæðnaðar. Þegar svona könnun er gerð, þá er spurt um allar grunn upplýsingar eins og kyn, aldur, búsetu, menntun, tekjur og stjórnmálaskoðanir.“

Setning Alþingis nóvember 2021vísir/vilhelm

Hafði minnstan áhuga á stjórnmálaskoðunum

Hún segist í upphafi rannsóknar hafa haft minnstan áhuga á stjórnmálaskoðunum en það breyttist fljótt þegar niðurstöðurnar lágu fyrir.

„Það kom mér á óvart hvað margir telja að þeir séu ekki að miðla upplýsingum um sjálfan sig með klæðnaði en málið er, að oftast sjáum við hvort annað áður en við byrjum að tala saman og við notum þær upplýsingar, það er að segja hvernig við lítum út og klæðum okkur til að mynda skoðun okkar á hvort öðru, byggða á fyrri reynslu og þekkingu.

Það er einfaldlega eina aðferðin sem er í boði. En tíska og klæðnaður er miðill og tæki en aðeins þeir sem skilja það geta notað þetta tæki sér til framdráttar. Ég myndi ráðleggja öllum að átta sig á því að þó fólk vilji ekki eða telji sig ekki vera að miðla neinu með klæðnaði þá erum við samt öll að gera það.“

Sjálfstæðisflokkurinn best klæddi flokkurinn

Óhætt er að segja að Sjálfstæðisflokkurinn hefur sigur úr býtum sem best klæddi flokkur landsins en það er áhugavert að sjá hvað flokkarnir hafa mismunandi áhuga á tísku.

„Sjálfstæðisflokkurinn hefur mestan áhuga á tísku en 25,3 prósent Sjálfstæðismanna hafa mikinn eða mjög mikinn áhuga á tísku, á meðan að Miðflokksmenn og Sósíalistar hafa engan áhuga á tísku en núll prósent svara að þeir hafa mikinn eða mjög mikinn áhuga á tísku.

Sósíalistar hafa lang minnstan áhuga á tísku en 66 prósent þeirra sem myndu kjósa þann flokk á morgun hafa lítinn áhuga á tísku.

Framsókn kemur næst, samt með meira en helmingi færri sem hafa lítinn áhuga á tísku eða 28.9 prósent.

Sósíalistar sprengja skalann

Linda spyr í umræddri rannsókn til dæmis Hversu oft notar þú klæðnað til að sýna öðrum hver þú ert?

„Þar sprengja Sósíalistar líka skalann með 66 prósent sem gera það oft eða mjög oft, það er að nota klæðnað til að sýna öðrum hverjir/hverjar þeir/þær eru.

Píratar koma næstir, samt með meira en helmingi minni prósentutölu eða 28.1 prósent sem nota klæðnað oft eða mjög oft til þess að sýna öðrum hverjir/hverjar þeir/þær eru.

Og svo spyr ég líka hverju þeir/þær vilja miðla, eins og til dæmis fagmennsku, persónuleika, eigin stíl og svo framvegis,“ segir Linda

Engar reglur um klæðaburð

Aðspurð hvort hún telur eitthvað ekki eiga erindi á Alþingi þegar kemur að klæðnaði vill Linda meina að það ættu engar reglur að vera um klæðaburð neins staðar í hinum frjálsa heimi og eru þingmenn þar á meðal.

„Þingmenn eiga að líta út fyrir að vera þaðan úr samfélaginu sem þeir koma og ekki á að skylda alla til að líta út eins og fjármálaelítan,“

segir hún og bætir við: „Þingmenn eiga að vera úr öllum hópum samfélagsins og eiga að klæða sig í samræmi við sjálfan sig. Það er of oft verið að gera lítið úr einstaka alþingismönnum fyrir að vera ekki „rétt“ klæddir og þá er yfirleitt verið að gagnrýna skort á fjármálaelítuklæðnaði.“

Hugmyndir síbreytilegar 

„Ef það er ekki leyfilegt að vera klæddur eins og sjómaður, verkamaður eða listamaður eða eitthvað annað á Alþingi, þá er einfaldlega ekki leyfilegt eða vel séð að þessar stéttir séu á þingi,“ segir Linda.

„Ég er alls ekki að rannsaka hvað er að vera vel klæddur eða rétt klæddur. Það eru hugmyndir sem eru síbreytilegar eftir tíma og stað.“

Hönnunarmars

Linda Björg Árnadóttir verður með fyrirlestur á Hönnunarmars þann 6. maí næstkomandi í Petersen svítunni í Gamla Bíói. Þar mun hún kynna fyrsta hluta af fjórum á doktorsverkefni sínu. Sá hluti verkefnisins sem verður kynntur hefur nú nafnið „Dress and Success in Banking.“ Viðburðurinn er opinn öllum og eru allir velkomnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×