Innherji

Eignarhaldið á Promens að færast aftur í hendur íslenskra fjárfesta

Hörður Ægisson skrifar
Sæplast er á meðal þekktustu útflutningsfyrirtækja landsins, sem á rætur sínar að rekja til Dalvík þar sem það var stofnað árið 1984, og rekur í dag þrjár verksmiðjur. Á Íslandi starfa um 60 manns.
Sæplast er á meðal þekktustu útflutningsfyrirtækja landsins, sem á rætur sínar að rekja til Dalvík þar sem það var stofnað árið 1984, og rekur í dag þrjár verksmiðjur. Á Íslandi starfa um 60 manns.

Tveir íslenskir framtakssjóðir, sem er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða, eru að ganga í sameiningu frá kaupum á starfsemi Promens hér á landi af bandarísku fyrirtækjasamsteypunni Berry Global sem er eigandi plastframleiðslufyrirtækjanna Sæplasts og Tempra. Kaupverðið er talið vera samtals á annan tug milljarða króna.

Það eru framtakssjóðirnir Freyja, sem er í rekstri Kviku eignastýringar, og SÍA IV, sem er í stýringu Stefnis, sem leiða fjárfestinguna, samkvæmt heimildum Innherja, en að þeim koma einnig aðrir innlendir fjárfestar. Samkomulag um kaupin, sem eru gerð í gegnum hlutafélagið Rotovia, eru með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins en samrunatilkynningu var skilað inn til eftirlitsins fyrr í þessum mánuði.

Með kaupunum á starfsemi Promens á Íslandi færist eignarhaldið aftur til innlendra fjárfesta eftir að hafa verið hluti af erlendum fyrirtækjasamsteypum í meira en sjö ár.

Í ársbyrjun 2015 seldu Framtakssjóður Íslands, sem var að mestu í eigu íslenskra lífeyrissjóða, og Landsbankinn Promens til breska umbúðarisans RPC Group og var heildarvirði samstæðunnar í þeim viðskiptum tæplega 62 milljarðar króna en fyrirtækið rak þá um 40 verksmiðjur í Evrópu, Afríku, Norður-Ameríku og Asíu. Fjórum árum síðar keypti bandaríska félagið Berry Global, sem er skráð á markað vestanhafs og með markaðsvirði upp á rúmlega 8 milljarða Bandaríkjadali, allt hlutafé RPC Group. 

Frá þeim tíma hafa Sæplast og Tempra verið hluti af Berry Global en það fyrirtæki starfrækir nærri 300 verksmiðjur um allan heim og er með um 50 þúsund starfsmenn í vinnu.

Sæplast er á meðal þekktustu útflutningsfyrirtækja landsins, sem á rætur sínar að rekja til Dalvíkur þar sem það var stofnað árið 1984, og rekur í dag þrjár verksmiðjur. Á Íslandi þar sem starfa um 60 manns, í New Brunswick í Kanada og á Spáni. Fyrirtækið stækkaði ört með sameiningum og kaupum á öðrum fyrirtækjum í plastiðnaði á sínum tíma. Árið 2007 var nafni framleiðslueiningarinnar á Dalvík breytt í Promens en þegar félagið var keypt af RPC Group 2015 var nafnið Sæplast aftur tekið upp.

Tempra varð hluti af Promens samstæðunni árið 2007 en fyrirtækið, sem er með verksmiðju í Hafnarfirði, er leiðandi á íslenskum markaði í framleiðslu á umbúðum fyrir ferskfiskútflutning og einangrun fyrir byggingariðnað.

Samanlögð velta fyrirtækjanna, sem eru undir eignarhaldsfélaginu Promens Reykjavik, var um 3,5 milljarðar króna á fjárhagsárinu sem lauk í marsmánuði árið 2020. Þá var samanlagður rekstrarhagnaður um 280 milljónir á sama tímabili. Í reikningum Promens Reykjavik var bókfært virði félaganna um 4,4 milljarðar króna vorið 2019.

Viðræður um möguleg kaup íslensku fjárfestanna á starfsemi Promens hafa staðið yfir í talsverðan tíma, eða frá því um mitt síðasta ár, en skriður komst á þær undir lok síðasta árs, samkvæmt upplýsingum Innherja, og eru þau nú komin á borð Samkeppniseftirlitsins. Að sögn þeirra sem þekkja vel til er áætlað kaupverð í viðskiptunum nokkuð yfir 10 milljörðum króna.

Framtakssjóðurinn SÍA IV sem kemur að kaupunum er 16 milljarðar króna að stærð en honum var komið á fót á vormánuðum síðasta árs og eftir því sem næst verður komist verður þetta að óbreyttu fyrsta fjárfesting sjóðsins. Framtakssjóðurinn Freyja er hins vegar 8 milljarðar króna að stærð, stofnaður árið 2018, og hefur frá þeim tíma fjárfest í fyrirtækjunum Ísmar, Arctic Adventures og Matorku. Stærstu hluthafar Freyju eru lífeyrissjóðirnir Gildi, Birta, LSR og LIVE, samanlagt með 75 prósenta hlut.

Mikið fjármagn hefur safnast frá fjárfestum í slíka framtakssjóði ásamt vísissjóðum að undanförnu og á síðustu tólf mánuðum nemur fjárhæðin samtals um 90 milljörðum króna.

Samtals hafa framtakssjóðirnir safnað 51 milljarði króna frá byrjun árs 2021 en sá stærsti er SÍA IV. Það er langstærsta upphæðin frá fjármálahruni.

Arnar Ragnarsson, forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni, sagði í samtali við Innherja í janúar síðastiðnum að sífellt væru að koma ný fyrirtæki á sjónarsviðið sem ætli sér að sækja fram á erlendum mörkuðum.

„Þetta eru fyrirtæki sem eru að leita að fjármagni til að vaxa og leita til framtakssjóða til að komast á næsta stig í starfsemi sinni. Við erum að sjá mörg ný tækifæri í slíkum fyrirtækjum í bland við rótgrónari rekstrarfyrirtæki sem þurfa vitaskuld áfram að leita eftir tækifærum til að þróast og styrkja sinn rekstur,“ sagði Arnar.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×