Handbolti

„Viðræður eru í gangi og ég á von á því að niðurstöðu sé að vænta“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðmundur Guðmundsson hitti landsliðið í fyrsta sinn í gær eftir Evrópumótið.
Guðmundur Guðmundsson hitti landsliðið í fyrsta sinn í gær eftir Evrópumótið. stöð 2 sport

Guðmundur Guðmundsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, segir að viðræður við HSÍ um nýjan samning standi enn yfir en niðurstöðu þeirra sé að vænta.

Samningur Guðmundar við HSÍ rennur út eftir leikina um sæti á HM í næsta mánuði. Hann hefur stýrt landsliðinu frá 2018.

„Það sem ég get sagt um þetta er að viðræður eru í gangi og ég á von á því að niðurstöðu sé að vænta. Viðræðurnar hafa tekið tíma,“ sagði Guðmundur í samtali við Guðjón Guðmundsson fyrir æfingu landsliðsins í Framhúsinu í dag.

Guðmundur kýs að hafa sama starfslið með sér og á EM í janúar þar sem Ísland endaði í 6. sæti.

„Ef af þessu verður myndi ég óska eftir því. Það er ekkert í hendi en það gerist kannski eitthvað á næstu vikum,“ sagði Guðmundur.

Klippa: Viðtal við Guðmund Guðmundsson

Íslenska liðið kom saman til æfinga í gær og mun æfa saman næstu daga, ekki ósvipað og það gerði í nóvember á síðasta ári. Guðmundur ákvað þá að kalla íslenska liðið saman til æfinga í stað þess að spila æfingaleiki. Hann segir að æfingavikur sem þessar séu afar mikilvægar.

Ómetanleg vika

„Við erum að vinna í varnar- og sóknarleik og öllu sem við erum að gera. Við vorum á myndbandsfundi í morgun. Við erum að skoða EM og sjálfa okkur mjög mikið, hvað við getum bætt, hvað getum við bætt, hverju viljum við halda. Þetta er alveg ómetanleg vika myndi ég segja,“ sagði Guðmundur.

Í næsta mánuði mætir Ísland annað hvort Austurríki eða Eistlandi í tveimur leikjum um sæti á heimsmeistaramótinu sem fer fram í Svíþjóð og Póllandi á næsta ári.

„Auðvitað erum við byrjaðir að hafa auga á næsta andstæðingi. Þegar við ljúkum þessu verkefni eru ekki nema rétt um þrjár vikur þar til við spilum við Austurríki eða Eistland,“ sagði Guðmundur.

Allt viðtalið við hann má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×