Ferðalög

Upplifðu ævintýralegt vetrarútsýni á toppi Móskarðshnjúka á Esjunni

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Það er mjög ólíkt að skoða Móskarðshnjúkana á sumri eða vetri.
Það er mjög ólíkt að skoða Móskarðshnjúkana á sumri eða vetri. Okkar eigið Ísland

Garpur Elísabetarson og Rakel María Hjaltadóttir skoða vetrarfegurðina á Móskarðshnjúkum í nýjasta þættinum af Okkar eigið Ísland sem kom út á Vísi í dag.

„Þegar það er geggjað veður þá er bara eitt í stöðunni, út að leika,“ segir Rakel áður en þau leggja af stað í ævintýri dagsins. Það var samt mikið af snjó, sem Garpur var eiginlega ekki að nenna að standa í þegar þau byrjuðu að ganga.

„Þetta er eins og að labba á færibandi sem fer í öfuga átt, maður rennur til baka í hverju skrefi.“

Mikilvægt að vanmeta ekki aðstæðurnar

Höfuðborgarbúar þurfa ekki að keyra langt til þess að komast að þessari einstöku gönguleið.

„807 metrar, sex til sjö kílómetrar og fyrir þá sem ekki vita þá eru Móskarðshnjúkar partur af Esjunni,“ segir Rakel um þessa fallegu gönguleið.

„Ekki bara fara upp að Steini, farið næst upp á Móskarðshnjúka. Ferðin byrjar hjá brúnni.“

Þau leggja mikla áherslu á það að vanmeta ekki aðstæðurnar í styttri göngum. Þegar þau voru komin úr snjó yfir á ís voru þau því snögg að setja á skóna góða brodda. 

„Þó að maður sé að fara í svona ferðalag sem er auðvelt að fara í og stutt frá bænum, þá er alltaf nauðsynlegt að vera með réttan búnað.“

Eins og sjá má í þættinum er mikill munur á því að ganga á Móskarðshnjúka að sumri til eða um hávetur eins og þau gerðu í þetta skiptið. 


Tengdar fréttir








×