Erlent

Vaktin: Hergagnalestin mikla þokast lítið áfram

Atli Ísleifsson, Samúel Karl Ólason, Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa
Hergagnalestin mikla hefur lítið hreyfst undanfarin sólarhring.
Hergagnalestin mikla hefur lítið hreyfst undanfarin sólarhring. Maxar Technologies via AP

Sjötti dagur innrásar Rússa í Úkraínu er hafinn. Fréttastofa heldur áfram að fylgjast með gangi mála með nýjustu tíðindum í vaktinni á Vísi hér að neðan. 

Samantekt á stöðu mála

  • Nýjar gervihnattamyndir sýna 64 kílómetra langa rússneska hergagnalest sem stefnir í suðurátt í átt að Kænugarði. Þar eiga að vera mörg hundruð skriðdreka, stórskotalið og fleiri herbílar. Hún hefur þó þokast lítið áfram undanfarin sólarhring eða svo.
  • Búist er við því að Rússar setji aukinn kraft í árásir sínar í dag eða á næstu dögum eftir að hafa gert breytingar á undanförnum dögum.
  • Nokkrar borgir í Úkraínu eru sagðar umkringdar rússneskum hermönnum.
  • Borgarstjóri Kænugarðs segist ekki geta sagt hve lengi Úkraínumenn geti varist rússnesku innrásinni lengi, en þó lengi.
  • Borgarstjórinn í Karkív segir að níu óbreyttir borgarar hið minnsta hafi látið lífið í sprengjuárás rússneska hersins í íbúðahverfi í borginni í gær. Rússar eru sakaðir um að beita klasasprengjum gegn almennum borgurum. Þá eru minnst tíu borgarar sagðir hafa fallið í eldflaugaárás á ráðhús Karkívs í morgun. Forseti Úkraínu segir þessar árásir hryðjuverk.
  • Rússar hafna þeim ásökunum en talsmaður Pútíns segir þær falskar.
  • Nágrannar Úkraínu í Búlgaríu, Póllandi og Slóvakíu ætla að útvega Úkraínumönnum sjötíu orrustuþotur.
  • Varnarmálaráðherra Rússlands segir að innrásinni verði ekki hætt fyrr en Rússar hafi náð markmiðum sínum.
  • Talsmaður Vladimírs Pútín forseta segir að refsiaðgerðir muni ekki stöðva Rússa.
  • Minnst fimm eru látnir eftir að Rússar skutu eldflaug á sjónvarpsturninn í Kænugarði og minnisvarðann við Babyn Yar, þar sem 33 þúsund gyðingar voru drepnir af nasistum árið 1941.
  • Fulltrúar ESB hafa komið sér saman um hvaða rússnesku fjármálastofnanir fái ekki lengur aðgang að SWIFT-greiðslukerfinu.
  • Forseti Úkraínu segir að ekki sé hægt að ræða frið á milli Rússlands og Úkraínu á meðan loftárásir eru gerðar á úkraínskar borgir og borgara
Hér má sjá kort af Úkraínu og nokkrum af stærstu borgum landsins.

Hægt er að fylgjast með nýjustu tíðindum í vaktinni að neðan, en lesa má Vísisvakt gærdagsins og síðustu daga hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×