Körfubolti

Haukar gerðu góða ferð til Njarðvíkur

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Helena Sverrisdóttir
Helena Sverrisdóttir Vísir/Vilhelm

Haukar gerðu góða ferð til Njarðvíkur í Subway deildinni í körfubolta í kvöld.

Þar unnu Haukakonur mikilvægan sigur og var hann afar sannfærandi þar sem lokatölur urðu 57-86.

Njarðvík byrjaði reyndar betur en eftir fyrsta leikhluta tóku Haukar leikinn yfir og unnu afar öruggan sigur. Keira Robinson var atkvæðamest Haukakvenna með 27 stig en Aliyah A'ta­eya Collier skoraði mest Njarðvíkinga eða fimmtán stig.

Á sama tíma vann Valur yfirburðasigur á Grindavík að Hlíðarenda, 86-33.

Hallveig Jónsdóttir var stigahæst Valskvenna með átján stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×