Golf

Dustin Johnson og Bryson DeChambeau ætla ekki í peningana í Sádí Arabíu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bryson DeChambeau og Dustin Johnson hafa nú báðir stigið fram og komið sinni framtíð á hreint.
Bryson DeChambeau og Dustin Johnson hafa nú báðir stigið fram og komið sinni framtíð á hreint. Getty/Stan Badz

Bandarísku kylfingarnir Dustin Johnson og Bryson DeChambeau ætla ekki að fórna PGA-mótaröðinni og Ryderbikarnum fyrir peningana í nýju mótaröðinni í Sádí Arabíu.

Þeir Johnson og DeChambeau hafa verið tvö stærstu nöfnin sem hafa verið orðuð við þessa nýju Ofurdeild en viðbrögð við henni hafa verið mjög hörð hjá PGA.

Þátttaka á mótaröðinni í Sádí Arabíu hefði þýtt það að kylfingarnir hefðu fyrirgert keppnisrétti sínum á bandarísku mótaröðinni, heimsbikarnum sem og í Ryderbikarnum.

Það að þeir tveir ætli ekki að vera með er áfall fyrir Ofurdeildarverkefni Sádanna þar sem goðsögnin Greg Norman er í fararbroddi.

„Ég er fullkomlega skuldbundinn því að taka þátt í PGA-mótaröðinni,“ skrifaði Dustin Johnson í yfirlýsingu. Hinn 37 ára gamli Johnson hefur tvisvar unnið mótið í Sádí Arabíu og var kannski þess vegna sterklega orðaður við nýju mótaröðina.

„Síðustu mánuði hafa verið miklar vangaveltur um nýja mótaröð og flestar þeirra hafa innihaldið mig og framtíð mína í atvinnumannagolfi. Mér fannst kominn tími á það að eyða þessum orðrómi. Ég er þakklátur fyrir tækifærið til að spila á bestu mótaröð í heimi og allt það sem hefur gefið mér og fjölskyldu minni,“ skrifaði Dustin.

Hinn 28 ára gamli DeChambeau átti síðan að hafa fengið hundrað milljóna dollara tilboð um að vera andlit nýju mótaraðarinnar í Sádí Arabíu. Eftir að Dustin sendi frá sér yfirlýsingu sína þá steig hann líka fram og sagðist ekki vera á leiðinni út úr bandarísku mótaröðinni.

„Það hafa verið miklar vangaveltur um stuðning minn við aðra mótaröð. Ég vil að það sé alveg á hreinu að á meðan bestu kylfingar heims eru að spila á PGA-mótaröðinni þá mun ég gera það líka,“ sagði DeChambeau á Twitter.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×