Handbolti

Leik Fram og Gróttu frestað

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Leik Fram og Gróttu hefur verið frestað vegna smita í herbúðum Fram.
Leik Fram og Gróttu hefur verið frestað vegna smita í herbúðum Fram. Vísir/Hulda Margrét

Þrátt fyrir að afléttingar á sóttvarnarreglum séu yfirvofandi heldur kórónuveiran áfram að leggja stein í götu íþróttalífsins á Íslandi.

Leik Fram og Gróttu sem átti að fara fram í Olís-deild karla á morgun hefur verið frestað vegna smita í herbúðum Fram.

Fyrr í dag var var sagt frá frestunum í bæði Olís- og Subway-deildunum þar sem að þremur leikjum var frestað í Olís-deild kvenna og einum ú Subway-deild karla.

Nýjar dagsetningar hafa ekki verið ákveðnar fyrir þá leiki, en leikur Fram og Gróttu verður spilaður þriðjudaginn 8. febrúar klukkan 19:30.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×