Innlent

1.214 greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
10.373 eru nú í einangrun vegna Covid-19.
10.373 eru nú í einangrun vegna Covid-19. Vísir/Vilhelm

1.214 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 61 á landamærum.

Frá þessu segir á síðunni covid.is. 10.373 eru nú í einangrun vegna Covid-19 samanborið við 10.486 í gær. 7.388 eru nú í sóttkví, en voru 7.307 í gær.

39 prósent af sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu og 61 prósent utan sóttkvíar.

21 er nú á sjúkrahúsi með Covid-19, en voru 26 í gær. Þrír eru á gjörgæslu.

3.492 einkennasýni voru greind í gær, 773 sóttkvíarsýni og 778 landamærasýni.

Alls hafa 73.530 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á þarsíðasta ári. 19 prósent íbúa hafa nú greinst með Covid-19. 49 hafa látist á Íslandi vegna COVID-19 frá upphafi faraldursins.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 4.824 en var 4.875 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 220, samanborið við 294 í gær.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×