Leikjavísir

Sony kaupir leikjarisann Bungi­e

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Pete Parsons forstjóri Bungie greindi frá tíðindunum fyrr í dag.
Pete Parsons forstjóri Bungie greindi frá tíðindunum fyrr í dag. Twitter

Raftækjafyrirtækið Sony hefur nú keypt leikjarisann Bungie, en fyrirtækið er þekktast fyrir leikina Halo og Destiny. Samningurinn hljóðar upp á 3,6 milljarða bandaríkjadala eða rúmlega 460 milljarða íslenskra króna.

Tæplega tvær vikur eru síðan forsvarsmenn Microsoft skrifuðu undir kausamning á leikjafyrirtækinu Activision Blizzard. Gangi þau kaup eftir verður Microsoft eitt stærsta tölvuleikjafyrirtæki heims en með kaupum Microsoft fylgja leikir eins og Call of Duty, World of Warcraft, Starcraft, Overwatch og Diablo.

Kaup Sony og fyrirhuguð kaup Microsoft gætu haft mikil áhrif í tölvuleikjaheiminum enda framleiða risarnir vinsælustu leikjatölvur heim. Sony framleiðir Playstation leikjatölvurnar en Microsoft framleiðir xBox. Í framtíðinni gætu leikir Bungie því ekki verið fáanlegir á xBox, sem er einn helsti samkeppnisaðili Playstation, leikjatölvu Sony.

Forsvarsmenn Bungie hafa þó lýst því yfir að ekki standi til að gera leiki fyrirtækisins einungis fáanlega fyrir Playstation: „Við munum halda sjálfstæði okkar áfram og vinna enn betur að okkar góða Bungie-samfélagi,“ segir í frétt Verge um málið.


Tengdar fréttir

Leikjarisar sameinast: Microsoft kaupir Activision Blizzard

Forsvarsmenn Microsoft hafa skrifað undir kaupsamning á leikjafyrirtækinu Activision Blizzard fyrir 68,7 milljarða dala. Lauslega reiknað samsvarar það tæpum níu billjónum króna eða níu þúsund milljörðum.

Vinnan og félagslíf færð í sýndarheima næstu kynslóðar internetsins

Í náinni framtíð verður fólki mögulegt að heimsækja vini sína, horfa með þeim á kvikmynd eða fara á tónleika, án þess að fara úr húsi eða standa upp úr sófanum. Einnig verður hægt að fara í göngutúra um fornar borgir og jafnvel aðrar plánetur, skoða söfn eða versla í stafrænum verslunarrýmum þar sem gervigreind sinnir afgreiðslustörfum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×