Matur

Ástríðukokkur sem á margt eftir ólært

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Kristín Björk stýrir matreiðsluþáttunum Eldað af ást.
Kristín Björk stýrir matreiðsluþáttunum Eldað af ást. Vísir

„Eldað af ást eru örþættir sem eru ætlaðir öllum matgæðingum,“ segir Kristín Björk Þorvaldsdóttir þáttastjórnandi Eldað af ást sem fóru af stað hér á Lífinu á Vísi fyrir jólin. Kristín Björk er matgæðingur, matarbloggari og flugfreyja.

Fyrstu tveir þættirnir eru komnir út og næsti þáttur er væntanlegur þann 19. janúar næstkomandi. 

„Við ætlum að elda saman góðan mat sem allir geta gert, líka þeir sem eru ekki lunknir í eldhúsinu. Við eldum alla jafna frá grunni og ætlum að koma með hugmyndir að allskonar mat úr öllum áttum, skapa góða stemningu og leggja fallega á borð. Að sjálfsögðu dössum við svolítið af ást í allar uppskriftir,“ segir Kristín Björk spennt.

Þáttastjórnandinn er mikill ástríðukokkur og heldur úti skemmtilegri Instagram síðu þar sem hún veitir innblástur, deilir uppskriftum og myndum af girnilegum réttum. 

Hvað er það versta sem getur gerst? 

„Ég er algjör dassari, fer sjaldnast nákvæmlega eftir uppskriftum,“ svarar Kristín Björk þegar hún er spurð hvernig hún myndi lýsa sjálfri sér í eldhúsinu. 

„Algjört lykilatriði í eldhúsinu er að hlusta á góða tónlist. Góð tónlist og góð stemning gerir allt betra, meira að segja ef maturinn klikkar.“

Þættirnir verða aðgengilegir bæði hér á Vísi og á Stöð 2+ efnisveitunni. Einnig verða þeir sýndir á sjónvarpsstöðinni okkar Stöð 2 Vísir. 

„Fólk sem eldar með mér þarf ekki að hafa mikla reynslu í eldhúsinu, bara a elda af ást. Ég er ekki menntaður kokkur og mjög margt sem ég á eftir ólært en það er um að gera að prófa sig bara áfram. Hvað er það versta sem getur gerst?“

Hér fyrir neðan má horfa á fyrstu tvo þættina af Eldað af ást. Í fyrsta þættinum sýndi hún æðislegan eftirrétt sem hún kallar Kalórínur. Í öðrum þætti sýndu hún frábært andasalat sem er matmikið en létt í maga. 

Kalórínur 

Andasalat


Tengdar fréttir

Eldað af ást: Matmikið andasalat sem er létt í maga

Eldað af ást er nýr matreiðsluþáttur hér á Vísi. Þáttastjórnandinn er matgæðingurinn Kristín Björk og önnur uppskriftin sem hún sýnir er andasalat sem er fullkomið eftir þungar hátíðarmáltíðir síðustu daga. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×